23.1.2009 | 16:21
Þetta fölnar við hliðina á flestu undanfarið.
"Umrædd gatnamót eru þau slysahæstu á öllu höfuðborgarsvæðinu, líkt og kynnt var sl. haust en um það má lesa með því að smella hér. Ljóst er að ökumenn sem eiga leið þarna um þurfa að hægja á sér,"
Hægja á sér? Hvernig væri hreinlega að nema staðar á ljósunum? Og svo, þegar það kemur grænt, aka af stað. Það vantar svolítið hér á Íslandi, að menn taki skarplega af stað á gatnamótum.
Fjórði hver ökumaður ók of hratt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
„að menn taki skarplega af stað á gatnamótum”
· það mengar meir að taka skarplega af stað á öllum gatnamótum
· það eyðir meira eldsneyti að taka skarplega af stað á öllum gatnamótum
· það slítur bílvélum hraðar með að taka skarplega af stað á öllum gatnamótum
· eldsneytisverð nú til dags er alls ekki lágt
Ég er alveg sammála þér - umferðin gengur allt of hægt, en þetta eru einfaldlega ástæður hví margt fólk tekur rólega af stað.
Davíð Elíasson (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 20:43
Reyndar er það öfugt: bíllin eyðir minna ef maður tekur svolítið hraustlega af stað - ef maður getur haldið þeim hraða svo í nokkra stund. Annars er maður að auka hraðann óþarflega lengi, sem tekur til sín meiri orku til lengri tíma.
Það ætti líka að menga öðruvísi - kannski minna jafnvel, því þá myndast meiri hiti í brunahólfinu.
Ég er ekki að segja að maður eigi að mökka af stað eins og í einhverri kvartmílu, bara nota vélina aðeins.
Ásgrímur Hartmannsson, 25.1.2009 kl. 16:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.