22.2.2009 | 13:32
Öll þessi herskip á svæðinu gagnslaus
Auðvitað. Þau geta ekki verið allstaðar.
Ég skil ekki þessa eindregnu þrjósku í þessum flutningamúlösnum að vilja ekki bara vopnast, og byrja að plaffa aðeins á þessa ræningja. Hvaða aumingjaskapur er þetta?
Þeir verða rændir alveg þar til þeir fara að skjóta á móti.
Sjóræningjar ræna grísku skipi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Það er ólöglegt í flestum þessum löndum að vera með skotvopn um borð, fyrir utan það þá fara þeir yfirleitt ekkert mjög illa með fanga svo það er kannski skárra að verða fangi sjóræningja en að láta drepa sig býst ég við.
Björn Halldór Björnsson, 22.2.2009 kl. 20:31
Plaffaðu á þá, og slepptu við að vera fangi. Þeir eru að reyna að ræna dallinn, þannig að það er hæpið að þeir skjóti mjög mikið á hann.
Eiginlega eru það fyrirtækin sem reka skipin sem ættu að heimta þetta. Það er stór kostnaður að hafa skip svona á reki á meðan verið er að spjalla við einhverja ræningja.
Það sést alveg empírískt á þessu að saturation löggæzla (lögga á hverju horni) virkar ekki úti á hafi, hve vinsæl sem hún kann að vera á landi. (Því það eru engin horn úti á sjó...)
Það er margfalt ódýrara og skilvirkara að hafa bara alla vopnaða.
Ásgrímur Hartmannsson, 23.2.2009 kl. 17:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.