Kjaftæði

Ríkið orsakar verðbólguna núorðið.  Ef þeir myndu nú hætta því, þá þyrfti ekki að hafa eins miklar áhyggjur af því að laun héldu ekki í við verðbólgu.

En nei, það á að fikta eitthvað í afleiðingum verðbólgu.  Á flókinn og rándýran hátt.  Frábært.

Lausn:

Það eru til dæmis misjafnlega margir skattar/tollar/vörugjöld á matvælum.  Fer eftir mætvælunum.  Ef það væri einfaldað, þá sparaðist peningur inni í sjálfu kerfinu - hærri upphæð en ykkur grunar.  Við einföldunina myndi verð á hinum og þessum fæðutegundum lækka.  Sem dregur úr verðbólgu.  Sem virkar tvisvar: fyrst við það að verð á mat lækkar, sem er gott fyrir lægra launaða einstaklinga, og hinsvegar við það að verðbólgan minnkar, þá minnka afborganir af hinum og þessum lánum.

Þetta á ekki að þurfa að vera flókið.


mbl.is Grunnur að lausn á vanda heimila?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband