30.4.2015 | 13:38
Skoðum þetta á alnetinu:
Ætti ekki að taka nema korter, ef svo langan tíma:
IIHS segir:
"HIGHEST RATES OF DRIVER DEATHS PER MILLION REGISTERED VEHICLES"
2011 and equivalent earlier models, 2009-12
1. Kia Rio (4-door car, mini): 149
2. Nissan Versa sedan (4-door car, small): 130
3. Hyundai Accent (4-door car, mini): 120
4. Chevrolet Aveo (4-door car, mini): 99
5. Hyundai Accent (2-door car, mini): 86
"LOWEST RATES OF DRIVER DEATHS PER MILLION REGISTERED VEHICLES"
2011 and equivalent earlier models, 2009-12
1. Audi A4 4WD (luxury car, midsize): 0
2. Honda Odyssey (minivan, very large): 0
3. Kia Sorento 2WD (SUV, midsize): 0
4. Lexus RX 350 4WD (luxury SUV, midsize): 0
5. Mercedes-Benz GL-Class 4WD (luxury SUV, large): 0
Hmm... mig grunar að fjöldi slysa dreifist ekki jafnt milli tegunda.
Smábílar hættulegri en stórir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2015 | 20:21
Auðvitað, segir sig sjálft:
Og tilvitnun hefst: "Þetta eru ákveðin vonbrigði en á sama tíma hefur fjöldi skráðra bifhjóla aukist mikið..."
Á sama hátt eru geimferðaslys eru frekar sjaldgæf hér enn, enda ansi fá geimför.
Fleiri bifhjólamenn lenda í slysum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2015 | 20:18
Getur hann ekki verið bæði?
Ég held það.
"Þegar að sjálfvirkur riffill hans hætti að virka notaði hann haglabyssu."
Ef hann hefði nennt að spyrjast fyrir, hefði einhver geta sagt honum að nota ekki 100 skota magasín. Þau eru ekki beint þekkt fyrir að virka mjög vel.
En hey...
Andlega veikur eða skipulagður morðingi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2015 | 16:17
Þetta er nú ljóta vitleysan
Við stöndum frammi fyrir miklum vanda sem þjóð og erfitt verði að finna lausn sem ekki hefur í för með sér verðbólgu.
Nah, létt verk og löðurmannlegt. Að hrinda lausninni í framkvæmd... ekki eitthvað sem ríkið vill, eða megnið af fólkinu.
Hægt væri til dæmis að lækka tekjuskattinn, nú, eða fella hann alveg niður. Ríkið gæti þá bara lifað af VSKinum.
Höfum í huga hér að ríkið tapaði ekkert á skattlausa árinu.
Eða þeir gætu dregið eitthvað, mikið, eða alveg úr pappírsveseni í kringum fyrirtæki almennt.
Spurður hvað sé til ráða svarar Pétur: ... Það er að segja að lægstu launin yrðu niðurgreidd af ríkissjóði.
Það er ekki það sem orðið "niðurgreitt" þýðir.
Ég hélt að ríkið tæki öllu sem gerði kerfið smá flóknara fagnandi.
Þetta væri fyrsta vers, annað vers væri það að taka til baka launahækkunina sem veldur verðbólgunni með skyldusparnaði.
Ha? You lost me there.
Svo kemur þetta:
1 atriði: Í árdaga var [verkfallsrétturinn] heilagt vopn sem beindist gegn fyrirtækinu sem menn unnu hjá.
2 atriði: Farið var í verkfall til að valda fyrirtækinu sem menn unnu hjá skaða og þvinga það þannig til að borga hærri laun.
3 atriði: Síðan uppgötva menn um allan heim að það er mikið sniðugra að valda þriðja aðila tjóni.
Niðurstaða Péturs: Það er einmitt þetta sem er að gerast núna og mín kenning er sú að þeir sem valda þriðja aðila mestu tjóni eru með hæstu launin, flugmenn, læknar og aðrir sem komast af einhverjum ástæðum í oddastöðu til að valda tjóni.
Og ég spyr: ætti þá fólk í þjónustustörfum ekki að fara í verkfall af mórölskum ástæðum?
Kjaftæði, segi ég.
Þessir aðilar geta haldið heilu atvinnugreinunum í gíslingu og valdið gífurlegu fjárhagstjóni með sínum verkfallsaðgerðum. Er það þetta sem menn sáu fyrir sér að verkfallsrétturinn myndi leiða til?
Ég hugsa... já.
Þörf á ljótum aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2015 | 20:01
Mikill skellur fyrir græna hagkerfið
Mikið eru samt grænu kallarnir farnir að vera gamlir. Komnir vel yfir þrítugt, þarna.
Stundaði sölu fíkniefna í Vestmannaeyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2015 | 17:11
Þeir sem eiga mest af rafvörum henda mest af þeim
Afríkumenn upp til hópa eiga ekki mikið af raftækjum, en vesturlandabúar mikið.
Raftæki ganga úr sér - annars vegar vegna þess að þau endast ekki að eilífu, hinsvegar vegna þess að þau eru ekkert nauðsynlega vel smíðuð. (Og þurfa ekkert alltaf að vera það.)
Ef þú vilt ekki henda mörgum raftækjum, keyptu þá vel smíðuð raftæki.
Íslendingar henda miklu af raftækjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2015 | 18:18
Loksins! Góðar fréttir.
Það hlaut að koma að því að það væri þó ein góð frétt, en ekki bara þetta stöðuga svartnætti annars.
Það er þá að verða hlýrra og notalegra, eins og mér hefur verið lofað núna í 20 ár.
Kannski ekki alveg kominn tími á pálmatréin, en þetta mun eitthvað aðeins spara kyndingu.
Aldrei verið hlýrra á jörðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2015 | 16:28
Að fólk treysti einhverju af þessu liði er alveg magnað
Ber fólki ekki góða söguna, reyndar.
Flestir treysta Ólafi Ragnari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2015 | 19:33
Víst hafði hann áhrif
Hann hækkaði verð í fjölmörgum vörum og jók verðbólgu sem því nam. Varanlega, skilst mér, vegna þess að þegar skatturinn var aflagpur lækkuðu þessar vörur ekkert nausðynlega í verði.
Tilgangurinn, grunar mig, var aldrei að draga úr neyzlu, heldur að kreista pening úr almenningi.
Þetta var þjónusta síðustu ríkisstjórnar við þá lægst launuðu.
Sykurskatturinn hafði ekki áhrif | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2015 | 16:00
Látið hann þá bara vera þarna.
Hann fýkur í burtu einn af þessum dögum.
Tekist á um númerslausan bíl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |