21.11.2016 | 17:39
Danir eldast víst eins og aðrir
Þetta er líklegast sama trend og annarsstaðar:
Eldra fólk á meiri pening, og hefur efni á stærri bílum. Og þarf þá, því eldra fólk á frekar börn, sem er einmitt auðveldara að koma fyrir í stærri bíl.
Jepparnir skýrast líka með aldri, vegna þess að með aldrinum fær fólk í bakið, og þá fer að verða atriði að setjast inn í bíl, en ekki niður í einn. Sitja hátt og beinn í baki.
Með aldrnum fara menn að meta meira solid vöru, í stað þess að skrölta um á einhverjum kassa, sem einhver snillingur hefur ákveðið að kalla bíl.
Líklegast.
Danir kaupa stóra bíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2016 | 22:03
Vekur nokkrar spurningar, eins og svo oft
"Hún segir að til standi að breyta samþykkt Pírata á reglum um þingmennsku og að gegna ráðherraembætti. Búið sé að boða til félagsfundar vegna málsins."
Hvers vegna? Út af þessu: "Verði fimm flokka stjórn að veruleika og einhverjir þingmenn Pírata taka við ráðherraembætti þurfa þeir að segja af sér þingmennsku?"
Með hliðsjón af þessu, væntanlega: "Sama gildi ekki um samstarfsflokkana."
Felur þetta í sér einhverja launa-lækkun? Sennilega.
"Ég held að nú sé möguleiki á jafnræði."
Byggt á hverju?
Mig grunar að þetta verði afar lýðræðislegt hjá þeim. Sem aftur mun valda erjum. Eða það getum við bara vonað.
"Það er ekkert vont að hafa fleiri við borðið heldur er það bara öðruvísi dýnamík,"
Kannski ekki vont fyrir *þau,* en ef allt gengur upp, þá er dagljóst að þetta verður vont fyrir *okkur.*
"Næstu dagar fara í sértækt málefnastarf en enginn fastur tímarammi hefur verið gefinn."
Ágætt hjá liðinu sem iðaði svo í skinninu þegar aðrir voru að ræða saman.
Sjáum hvernig sandkassaliðinu gengur að vinna saman. Ég á reyndar ekki poppkorn eins og er...
Þyrftu að segja af sér þingmennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2016 | 00:55
Gæti orðið skemmtilegt þegar Parkinson fer að segja til sín fyrir alvöru
Hvað annað veldur því að hún er á iði alltaf?
Þessar sífelldu grettur, hreyfingar fram og aftur, hendi þangað, svo þangað, svo hin hendin...
Hey... litlu hlutirnir. Ef stóru hlutirnir ganga ekki upp, verður maður að hafa gaman að litlu hlutunum.
Það virkuðu allir mjög jákvæðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2016 | 22:33
Æ nei, ekkert veður í framtíðinni
17.11.2016 | 20:04
Gæti ég fengið meira?
Þetta er svona núna, en hvernig var þetta 2006? En 1996? En 1986? 1976?
Bara svona til samanburðar.
Ég meina, kannski var þetta alltaf svona. Veit ekki meir.
Þriðjungur ekki læs við útskrift | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2016 | 19:47
Þetta þarfnast heimildaskrár
Þessi pistill lýsir of fordómakenndu viðhorfi til kjósenda þessa annálaða frambjóðenda til þess að vera marktækur öðruvísi.
Rýnt í huga kjósenda Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2016 | 14:58
Vill? Hún hefur ekkert val.
Ef ég byggi ekki á Íslandi myndi ég hlæja. En þetta bitnar allt á mér, sem er tragískt.
Katrín vill mynda fjölflokkastjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2016 | 13:48
Skoðum þetta
Þriggja flokka ríkisstjórnir:
VG + Sjálfstæðisflokkurinn + Píratar = 41 þingmaður - sé það ekki fyrir mér, þar sem Píratar & VG hafa opinberlega þvertekið fyrir að vinna með XD.
Fjögurra flokka ríkisstjórnir:
VG + Píratar + Framsóknarflokkurinn + Viðreisn = 35 þingmenn - sé það ekki fyrir mér, þar sem Píratar hafa opinberlega þvertekið fyrir að vinna með framsókn (minnir mig, held mig hafi ekki bara dreymt það).
Fimm flokka ríkisstjórnir:
VG + Píratar + Viðreisn + Björt framtíð + Samfylkingin = 34 þingmenn - Það kæmi sér náttúrulega illa fyrir alla, óháð pólitískum skoðunum. Voða gaman fyrir masókista. Yrðu kannski skemmtilega rætin illindi milli þeirra, en er einhverjum akkur í því? Þeir geta náttúrulega kennt Óttari um allt á eftir.
VG + Framsóknarflokkurinn + Viðreisn + Björt framtíð + Samfylkingin = 32 þingmenn - sama.
Já... það er erfitt að vinna með þroskaskertu fólki, og mig hlakkar ekkert til að hafa slíkt í stjórn.
Hvaða kosti hefur Katrín? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2016 | 17:10
Samsung bíllinn
Hér er njósnakvikmynd af fyrstu prófunum á gripnum:
Samsung stefnir á bílamarkaðinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2016 | 16:58
Prófið að vefa hana úr steypujárni
Þannig væri talsvert meira mál að brenna hana.
Kona og karl í haldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |