Vandamálið ekki óskiljanlegt, þó sumir virðist halda annað

Katrín Jak­obs­dótt­ir seg­ir til standa að halda kröfu stjórn­ar­and­stöðuflokk­anna um van­traust, þingrof og kosn­ing­ar, til streitu.

Það má svosem.

Hitt er annað, að ég hef slæma reynzlu af þingrofi svona, og kosningum.  Ég man nefnilega vel eftir hálfvitunum sem tóku við eftir slíkt seinast, og vil helst ekki svoleiðis aftur.

Þá væri auka-kjörtímabil með Sigmundi betra. 

Katrín seg­ir að það sem henni finn­ist at­huga­vert við málið,[...] sé að enn hafi ekki borist svör frá stjórn­ar­flokk­un­um um hvernig eigi að taka á þeim stóra vanda sem skatta­skjól eru al­menn. Vanda­málið sé mun stærra en svo að það endi með af­sögn Sig­mund­ar.

Hvað finnst henni ætti að gera?  Bara forvitni í mér.

„Bara í þess­um leka eru 600 fé­lög sem tengj­ast Íslandi og  800 nöfn (einstaklingar?) sem sýn­ir okk­ur að hér er lít­ill, fá­menn­ur hóp­ur auðugs fólks sem er að kjósa að nýta sér þessi skatta­skjól í ein­hverj­um til­gangi.

"í ein­hverj­um til­gangi?" Skattaskjól eru, eins og felst í nafninu, til þess að spara pening.

Sýnist mér augljóst að 600 félgum sem tengjast íslandi finnst skattkerfið í útlöndum hérlendu kerfi fremra, og hafa bolmagn til að notfæra sér það.

Eða hvað?

Þetta er ekki flókið og ekkert dularfullt.

Við vit­um al­veg að þó svo að það kalli ekki á að fólk sé að svíkja und­an skatti þá snýst þetta um leynd á eign­ar­haldi...

... ja, þetta eru, eins og ég hef bent á áður: viðkvæmar persónuupplýsingar, sem mér er sagt að eigi þá að halda leyndum í 30-80 ár.

Eða hvað?

...og að fylgja öðrum regl­um en við höf­um sam­mælst um að fylgja í viðskipta­hátt­um," seg­ir Katrín.

Við?  Við hver?

Þetta virðist allt vera löglegt, í það minnsta hefur sá frómi maður Sigmundur ekki gert neitt ólöglegt með því að eiga þarna pening.  Við getum heldur ekki gert ráð fyrir að öll þessi, jafnvel einhver þessara félaga eða einstaklinga sé með eitthvað ólöglegt í gangi, sem bendir eindregið til þess að þeir séu einkitt að fylgja þeim reglum sem "við" höfum sammælst um.

Lögum, sem sagt.

Óþarfi að vera eitthvað að ljúga úr ræðupúltinu.  Jafnvel um fólk og fyrirtæki sem þér kann að vera í nöp við.

„Ég hef ekki heyrt nokk­urn mann tala um hvernig við eig­um að taka á þessu ...

Talaðu við SUS, svona lagað er eitt af þeirra fjölmörgu áhugamálum, veit ég, ég er viss um að þeir koma með nokkrar hugmyndir.  Þó ekki væri nema ein, þá væri það samt meira en ekkert.

Við í VG höf­um ekki trú á því að áfram­hald­andi sam­starf þess­ara flokka muni skila nein­um ár­angri í að tak­ast á við þetta stóra mál.

Ég, ekki í flokki, hef ekki trú á því að VG leysi neitt.


mbl.is Vandamálið stærra en Sigmundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. apríl 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband