Það sem fólki stafar mest ógn af

Kveikið á þessu:

Þann 14 ágúst árið 2023 barst Lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu til­kynn­ing um grunn­sam­leg­an mann með ryk­sugu í miðbæn­um, og hegðaði sér á þrifalegan hátt.

Hann hljóp í burtu þegar hann var eitað, og hefur ekki til hans sést síðan.

Þann 17 Júlí árið 2023 bár­ust lögreglunni til­kynn­ing­ar um hávaða frá ryk­sugu í fjöl­býl­is­húsi um miðja nótt.

Það er með dularfyllstu málum sem ratað hafa á borð lögreglu frá upphafi.

Aðfararnótt hins 24 Febrúar árið 2024 fékk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um einstakling vopnaðan ryksugu, og er hann sagður hafa verið að gera helgarþrifin á bílnum sínum.

Í byrjun september árið 2019 sást hinn ógnvænlegi dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, sem stundum er kallaður Símon grimmi, á ferðinni með ryksugu.

Símon kallar ryksuguna sína Snata, og fer oft með hana út að labba.


Bloggfærslur 11. apríl 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband