30.6.2020 | 14:55
"Friðsælir mótmælendur"
Friðsælum mótmælendum í St. Louis var brugðið á leið þeirra að húsnæði borgarstjórans á sunnudag þegar íbúar einbýlishúss, hjón, sem þeir gengu fram hjá komu út úr húsi sínu og beindu að þeim hálfsjálfvirkum riffli annars vegar og skambyssu hins vegar.
Þeir brutu sér leið inn á einkalóð og höguðu sér ófriðlega:
Mark og Patricia McCloskey [...] segjast hafa óttast um líf sitt þegar mótmælendur brutu sér leið inn í götuna þeirra, sem er lokuð almenningi.
Sleppið íróníu-gæsalöppunum. Þetta voru óeirðaseggir, og þeir brutust þarna inn.
Á myndskeiðum af atvikinu þykir hins vegar nokkuð ljóst að hjónunum hafi ekki stafað nokkur ógn af mótmælendunum sem áttu leið hjá,
Átti leið hjá, í merkingunni tóki á sig krók til að ógna fólki af handahófi.
... og segja það ekki óalgengt að í mótmælum, þó friðsæl séu, séu reglur brotnar.
Þið tönnlist á að þessar óeirðir séu friðsælar. Hvers vegna?
Spurning: hve marga þarf að drepa og hve mörg hús þarf að brenna til grunna áður en það teljast óeirðir?
Engum hafi þó stafað hætta af þeim þó þau hafi ákveðið að ganga lokaða götu á leið sinni að heimili borgarstjóra St. Louis.
Ef þetta blessaða fólk hefði ekki mætt út á tröppur með hólk í hönd væru óeirðaseggir nú búnir að leggja húsið þeirra í rúst, berja þau bæði í klessu, og jafnvel brenna allt draslið til grunna.
En friðsamlega.
Skotvopnalöggjöfin í Missouri er ein sú frjálslyndasta í öllum Bandaríkjunum, auk þess sem lög segja til um rétt fólks til að skjóta óboðna gesti á heimili þess til bana undir ákveðnum kringumstæðum.
Það þarf greinilega að vera þannig.
MBL, málgagn illvirkja.
![]() |
Beindu byssum að mótmælendum sem áttu leið hjá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2020 | 01:01
Mýtan um fíkniefnalaust Ísland árið 2000 er dauð
Segir hún árið 2020.
Hugsa hraðar.
![]() |
Mýtan um fíkniefnalaust Ísland árið 2000 er dauð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.6.2020 | 21:07
Bandaríkjaforseti bannaður á Twitch
https://www.rt.com/usa/493282-twitch-reddit-suspend-ban-trump/
Q: "As expected, Reddit has banned The_Donald. This is why we closed up shop there and migrated to http://thedonald.win 3 months ago."
Þögn í 3 mánuði flokkast þá sem haturs-áróður núna? Merkilegt.
Var það hreindýrs-gaurinn?
Næst verður hann blokkeraður af Twitter, og neyðist til að senda skilaboð frá öðrum vefsvæðum, sem þá fá alla þá traffík.
Það gengur frá Twitter. Þetta er næsti mánuður fyrir ykkur.
Þeir eru að ritskoða Forseta USA. Það segir okkur bara eitt: hann er merkilegri en við héldum.
28.6.2020 | 20:44
Hver voru hlutföllin úr utan-kjörfundaratkvæðum?
Forvitni í mér.
Var munur? Merkjanlegur kannski? Eða eins?
Hvar fæ ég þessar upplýsingar?
![]() |
Lokatölur liggja fyrir: Guðni fær 92,2% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2020 | 15:52
13.000 manns voru alltaf vakandi
Bara um að gera að vekja fleiri.
Dream on.
Segir Guðmundur að niðurstöður kosninganna hafi ekki komið sér mikið á óvart. Sér hafi þó tekist að beina sjónum almennings að mikilvægum málefnum á borð við mikilvægi þess að auðlindirnar haldist í þjóðareigu og að bankarnir verði ekki seldir.
Mér sýnist ekki. 33,1% nenntu ekki einu sinni að mæta. Og ég sé ekki þennan Guðna fara að standa í vegi fyrir neinu sem stjórninni dettur í hug. Ég hef ekki séð neitt frá honum sem gefur til kynna að hann sé neinn lýðræðissinni.
Núna verður forsetinn að standa í lappirnar, en ég vona að stjórnvöld forherðist ekki í einkavæðingu og sölu ríkiseigna.
Þetta er hans framtíðarspádómur, óviljandi kannski. En nú hafa stjórnvöld semsagt örugg 4 ár til þess að selja eða gefa einhverjum einkavinum til dæmis Landsvirkjun.
Gengur ekki Orkupakki 4 einmitt út á að hluta hana niður og selja? Mig minnir það.
Írónían er að mig grunar að flestir hafi kosið Guðna vegna ótta við breytingar.
![]() |
Búinn að vekja 13 þúsund manns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2020 | 23:56
Það góða við málþóf...
Er að þá kemur ríkið engu í verk.
"Samvinnuverkefni um vegafrmkvæmdir" er td mjög spúkí: https://www.althingi.is/altext/150/s/1122.html
"Samvinnuverkefni: Verkefni þar sem einkaaðili annast fjármögnun í heild eða að hluta eða tekur með öðrum hætti áhættu af gerð og rekstri opinbers mannvirkis, eftir atvikum með heimild til gjaldtöku fyrir notkun mannvirkisins á rekstrartíma."
og: "Veggjald: Gjald sem greitt er fyrir rétt til að nota tiltekinn veg eða vegarkafla, á tilteknum tíma í tiltekin skipti."
Frumvarp um veggjöld. Því við borgum víst ekki nóg fyrir vegina.
Við eigum hauk í horni hjá Miðflokknum.
![]() |
Enn ósamið um þinglok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2020 | 23:25
Það er ekki mikið að marka Evrópusambandið, frekar en venjulega
Mesta hryðjuverkaógnin innan Evrópusambandsins stafar af jihadistum og öfga-hægri hryðjuverkamönnum. Frá þessu er greint í skýrslu Evrópusambandsins um hryðjuverk, sem birt var í gær.
Það stafar ekki meiri hætta af þessum "hægri öfgamönnum" en svo að maður heyrir ekkert um þá. Annað en draugasögur af MBL, RÚV og Vísi.
Islamskir ofbeldismenn halda uppi fjörinu.
Heildarfjöldi árása lækkaði frá síðustu árum, og er lækkunin rakin til fækkunar á árásum tengdar þjóðernis- eða aðskilnaðarhreyfingum, m.a. á Spáni og í Frakklandi.
Baskar eru semsagt hægri-öfgamenn. Samkvæmt MBL.
Þar að auki voru öfga-hægri árásir í Christchurch í Nýja Sjálandi,
Samkvæmt manifestoi þess ágæta hryðjuverkamanns, þá var hann ekki hægri-sinnaður; hann sagði hreint út að hann væri sósíalisti; fasisti, umhverfisverndarsinni og á móti almennri skotvopnaeign (vegna þess að auðvitað.) Hans orð, ekki mín.
Hann var svona eins og Gollum Thunberg stelpan þarna.
Ef þú ert sósíalisti getur þú ekki verið hægri, og síst af öllu öfga hægri.
Textinn hans ætti að vera til einhversstaðar á netinu. Fact checkið endilega.
Þá jukust einnig öfga-vinstri árásir á árinu 2019, og voru þær allar bundnar við Grikkland, Ítalíu og Spán, og voru yfirleitt tengdar ofbeldisfullum mótmælum og átökum við öryggissveitir.
Nú? Telja þeir Þýzkaland þá ekki með? Svo eitt tilvik sé nefnt. Það er meira. Það er ekki talað um þetta. Þessu hefur verið sleppt í skýrzlunni. Spurning hversu mikið er að marka hana þá. Vinstri-öfgasamtök eru mikil plága í Þýzkalandi og Austurríki. Sem er viðeigandi, þau þekktustu eru þaðan.
Hitler var jú Austurrískur. Og Marx þjóðverji. Allskyns vinstri öfgamenn hafa stutt að sækja illsku hugmyndir sínar. Þær lifa enn, sjáið bara hvað er í gangi í USA núna. Menn eru að rífa niður styttur af fornum pólitískum andstæðingum eins og Abe Lincoln.
Aðstæður á stríðshrjáðum svæðum utan Evrópu hélt áfram að hafa áhrif á hryðjuverkaástand innan álfunnar, en sjö hryðjuverkaárásir tengdar jihadisma voru framkvæmdar í Evrópu árið 2019, en komið var í veg fyrir fjórtán slíkar árásir á árinu.
Sem þýðir: hryðjuverkamenn koma siglandi yfir miðjarðarhafið til að myrða Evrópumenn.
![]() |
Öfga-hægriárásum fjölgaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2020 | 16:54
Þú ert ekkert óöruggari í útlöndum
Það er helst ef þú ferð til USA, því mér skilst að þar séu menn að reyna að starta kommúnnista-byltingu.
Það tekur smá stund að ráða framúr því.
Kína-kvefið er miklu minna vandamál.
![]() |
Óráðlegt að ferðast erlendis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2020 | 15:30
Fálkaorðan
Fálkaorðan er aldrei ekki veitt.
Pælum aðeins í því. Á hverju ári fær einhver Knoll fálkaorðuna fyrir vel unnin störf, því hann/hún/það vann hjá einhverri ríkisstofnun í 20 ár við að búa til hálsmen úr bréfaklemmum. Og einhver Tott fær fálkaorðuna fyrir að naga blýanta listilega í 25 ár. Og Ding & Batt fá hvor um sig orðu fyrir störf í þágu framþróunar á verklagssviði ryksöfnunar í 18 ár, sem enginn tók eftir.
Svo, fimmta hvert ár kannski, þá fær einhver Þórður fálkaorðuna fyrir að hafa bjargað 12 manns úr sjávarháska.
Og ég hugsa: hvað hugsa þau Knoll, Tott og félagar, sem eru að fá mikilvæg verðlaun fyrir að hafa safnað ryki listilega á kostnað almennings alla sína lífstíð, engum til framdráttar, á meðan þarna stendur gaur sem hefur unnið sér inn *sömu verðlaun* fyrir að njarga 12 lífum, sem leiðir til að fjöldi barna kynnist feðrum sínum, og kannski tvær tylftir nýs fólks kemst á legg.
Sömu verðlaun eru veitt fyrir eitthvað, og fyrir ekkert.
Hvorum líður fáráðlega, Knoll og Tott eða Þórði?
23.6.2020 | 22:08
Sá þetta á bol:
Írónían lekur af þessu.
![]() |
Þið eigið heima hér, á fimm tungumálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |