1.12.2010 | 22:28
ca 1.6% af jarðarbúum eru dópistar
Sumir eru á dópi, aðrir hafa ekki aðgang að slíku. Þá vegna þess að þeir búa í frumskógi þar sem hvíti maðurinn hefur ekki látið sjá sig enn, og þeir hafa ekki enn fundið ofskynjunarsveppi í grennd.
Skv internetinu eru jarðarbúar núna 6.775.235.741. Þá ætti fjöldi dópista í heiminum að vera 108.403.772. Það eru fleiri en búa í Þýskalandi og Skandinavíu samanlagt. Finnland & Danmörk meðtalið.
Þá er ekkert óeðlilegt við það að það séu 16 milljónir að sprauta sig.
Ég ætla nú ekkert að halda niðri í mér andanum eftir að farið verði að fara með fíkla eins og sjúklinga en ekki glæpamenn. Hvernig fór síðasta könnun? 83% á móti? http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2010/11/25/vilja_ekki_logleida_kannabis/
(Kannabis, heróín, bananahýði... sama liðið eltist við þetta allt.)
Fyrsta skrefið í að leysa vandamálið, er að gera sér grein fyrir að vandamálið er annars eðlis en þú heldur að það sé.
16 milljónir sprautufíkla í heiminum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
það er samt töluvert minna heldur en að fólk vill stundum halda...
David (IP-tala skráð) 2.12.2010 kl. 00:06
Gott mál þetta að meðhöndla sjúklinga sem sjúklinga. Gott að fólk lokar ekki inni krabbameinssjúklinga og hýðir fólk með geðtruflanir. Berja það bara frískt, aðferðin.
Í frumskógum Norður Afríku er ofskynjunarefni sem heitir Iboagain og læknar hörðustu dópista á minna enn einum sólarhring.
Hef ég séð harðsvíraða heróínista breytast í fólk aftur með þessari aðferð, aftur og aftur, enn þessi aðferð er að sjálfsögðu bönnuð á öllum svæðum sem lyfjaríkin ráða yfir..
Hversu margir sprautufíklar eru til í heiminum segir nákvæmlega EKKERT um eityrlyfjavandamálið....
Og hvað Íslendingum finnst um kannabis reiknast ekki sem skoðun á því af viti né einu eða neinu máli í þessum bransa ... (www.leap.cc)
Óskar Arnórsson, 2.12.2010 kl. 12:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.