Þeir taka klám mjög alvarlega þarna úti

Kannski  var þetta svona ofbeldisfullt klám?

Verður að hugsa um börnin sko.  Eins gott að internetið hjá þeim er allt vel ritskoðað. 


mbl.is Lét taka fyrrverandi unnustu sína af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vil bara að fólk pæli í því að í Norður Kóreu er guðleysi skylda samkvæmt lögum og öll trúarbrögð bönnuð með lögum. Svo hættið að ásaka trúarbrögð í einfeldni ykkar og aðra hugmyndafræði sem ekki er ykkar um að vera undirstaða hins illa. Hvað dóu margir í Sovét? Uppspretta hins illa eru mannlegir brestir, sameiginlegir öllum mönnum, og búa í ykkur sjálfum sem dæmið aðra. Öll reynum við einhvern tíman óþarflega að stjórna öðru fólki, og er dómharkan og að allir sem eru öðruvísi en við og hafi aðrar skoðanir hljóti að vera verri, vægasta birtingarmynd þessarar yfirráðasýki. Sú versta og ljótasta er eins og hjá Kim í Kóreu. Valdið spillir þeim sem þjást af dómhörku og öðrum vægari formum drottnunarsýki og getur jafnvel gert þá að morðingjum.

Raq (IP-tala skráð) 29.8.2013 kl. 23:34

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hver minntist á trúarbrögð?

Ásgrímur Hartmannsson, 29.8.2013 kl. 23:36

3 identicon

Kim. Ef þú ert uppvís af neinni tegund trúar á æðri máttarvöld, lítilli bænarstund heima hjá þér eða "hjátrú" af neinu tagi, þá verður þú tekinn af lífi og álitinn ógn við ríkið þarna úti. Sovét gekk næstum jafn langt, og þeir drápu í heildina fleiri en nazistar, en þó með minna ógeðfelldum og hrollvekjandi hætti. Nazismi er einnig veraldlega hugmyndafræði. Staðreyndin er sú að öll hugmyndafræði getur orðið hættuleg og það á líka við þá hugmyndafræði sem er ráðandi hugmyndafræði hér á landi. Það þarf að stemma stigu við ofríki einnar tegund hugsunar fram yfir allar aðrar tegundir og að fjöldinn verði óhóflega sammála um hlutina, og þar með hættulegur þeim sem tilheyra honum ekki. Einsleitni í hugsun er alltaf hættuleg og stundum lífshættuleg. Sérstaklega á stöðum þar sem umburðarlyndi er jafn lítið og á Íslandi og virðing fyrir náunganum jafn takmörkuð.

Raq (IP-tala skráð) 29.8.2013 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband