28.9.2008 | 21:46
Hvernig lýsir öfgamennskan sér?
Hverju nákvæmlega þarf maður að halda fram til að vera skilgreindur sem hægri-öfgamaður?
Þetta gæti verið gott mál. En ég hef ekkert til að byggja á nema þetta:
Stuðningur við flokkinn, sem þekktur fyrir andstöðu sína gagnvart ESB og í innflytjendamálum, jókst um 7% í dag samanborið við síðustu þingkosningarnar, sem fram fóru í október 2006.
sko:
hann er þekktur fyrir andstöðu sína við ESB, ekki gagnvart.
Þetta gæti verið að afla honum fylgi.
Hægri öfgamenn fagna í Austurríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Ég reikna með að það sé einhver sorgleg blanda af félagslegri íhaldsemi, kristni og þjóðernisvæmni.
Páll Jónsson, 29.9.2008 kl. 02:46
Já, sæll.
Jón Halldór Guðmundsson, 29.9.2008 kl. 17:06
Semsagt, alveg sama og allstaðar annarsstaðar? Það eru bara engar sérlegar öfgar. Þá má benda á hvaða pólitíkus sem er og kalla hann hægri öfgamann. Þeir eru nefnilega allir félagslega íhaldssamir (amk í orði), Kristnir (í þjóðkirkjunni... hvað sem það táknar), og umhverfisvæmnir. Líka þeir sem vilja virkja allt.
Ásgrímur Hartmannsson, 29.9.2008 kl. 22:14
Humm? Félagsleg íhaldsemi í íslenskum stjórnmálum virðist helst felast í því að þjóðfélagið sé nú ekki tilbúið alveg strax fyrir hjónabönd samkynhneigðra. Ég hélt að það væri ekki einu sinni umdeilt að við erum eitt frjálslyndasta samfélag í heimi.
Með þessu "kristni" kommenti var hugmyndin að skjóta á það þegar pólitík manna er gegnsýrð af íhaldssömum kristnum viðhorfum. Ég skal glaður syngja jólalög við hlið "guð er ást og friður" þingmanna hér á landi þar til ég verð blár í framan.
Þjóðernisvæmni og umhverfisvæmni virðast hins vegar yfirleitt vera sitt hvorum megin á pólitíska skalanum, ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara með að jafna því saman. Þegar "XXXland er best í heimi" er komið á stefnuskrá flokks þá er maður yfirleitt kominn hægra megin á skalann.
Páll Jónsson, 30.9.2008 kl. 02:36
Ef það er nóg að vera þjóðernissinnaður til að vera hægra megin, þá eru nú flestir þeim megin - líka kommarnir.
Og þá er það merkingarlaust að kalla menn hægri menn, hvað þá hægri öfgamenn.
Ásgrímur Hartmannsson, 30.9.2008 kl. 12:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.