9.12.2015 | 07:15
Þetta tvennt útilokar ekki hvort annað
"Kraftmikill en samt þýðgengur"
*en samt?*
Þýðgengi fær maður með annað hvort hærri ganghraða eða fleiri sílyndrum.
"Nýi bíllinn er fimmta kynslóð þessa vinsæla pallbíls sem seldist vel á Íslandi þegar innflutningsgjöld voru pallbílum hagstæð og þeir báru lægri vörugjöld en sambærilegir jeppar. Nú er tíðin önnur og þess vegna skiptir máli að þeir mengi minna en áður,"
!!!
Nei, það skiftir nestu að hann sé ódýr. Og helst að hann eyði sem minnstu miðað við stærð og afl.
Öllum er sama hve mikið þetta mengar.
"Nýja MIVEC-dísilvélin er eina vélin í boði í þessum bíl og satt best að segja dugar hún vel þrátt fyrir að vera aðeins 2,4 lítra."
Ráðfærum okkur við MMC á útlandinu: Þar er boðið uppá 4 vélar: 3 díesl, eina 2.4 bensín. Virðist vera all frumstætt, allt saman.
Það er einhver afríku-fílingur í þessu öllu.
"Þess vegna er eyðsla hennar aðeins 7,2 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri,"
Mælduði?
"Til samanburðar er CO2 innihald Toyota Hilux..."
Já, það er ég viss um að Hilux inniheldur CO2, alveg eins og allt annað sem getur innihaldið andrúmsloft.
" L200 er eini pallbíllinn sem hægt er að keyra í hvort sem er afturhjóladrifi eða fjórhjóladrifi við hvaða aðstæður sem er."
Það grunar mig nú að hægt sé að keyra jafnvel crappy pallbíla eins og Dodge Ram við hvaða aðstæður sem er í hvoru drifinu sem verða vill.
"Kosturinn við að geta sett hann í fjórhjóladrifið í háa..."
... hafiði einhverja hugmynd um hve gömul þessi tækni er?
"...og lengja blaðfjaðrir að aftan..."
Fjöðrunin á þessu er hvað nú? Blaðfjaðrir?
Nýtýzku, það. Alveg eins og á 14. öld.
"Nýr L200 er á mjög svipuðu verði, 7.390.000..."
Fyrir þann pening er unnt að hringja vestur um haf og láta senda 10 Ford 150 trukka, innan við 10 ára og lítið ekna.
Það eru miklir klassabílar, hannaðir af sjálfum Fred Flintstone, smíðaðir úr graníti og risafurum og þola allskyns bullshit, eins og að vera ekið fram og aftur í afturdrifinu í rigningu.
Til samanburðar, þá kostar svona prammi frá 4.100.000 kr í Þýzkalandi. Það er alveg nóg.
7.4? No way.
Kraftmikill en samt þýðgengur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2015 | 19:24
Það er óþarfi
Gefið það bara frjálst, þá gerist þetta að sjálfu sér.
Það kostar nefnilega formúgu að talsetja allt.
Menn eru á launum við þetta.
Hyggjast banna talsetningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2015 | 18:57
Ekki endalaust hægt að kenna Spiderman um allt sem aflaga fer
Finnst mér samt magnað að þeir hafi þolað Chaves og svipaða gutta í meira en 16 ár.
Magnað er þeirra langlundargeð.
Of seint núna, held ég samt, þegar búið er að leggja hagkerfið alveg í rúst.
Og þetta hefpi alveg geta verið svona OK hagkerfi - þetta er meiriháttar olíuframleiðandi.
Sósíalistar misstu tök sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2015 | 17:40
Þeir vilja bara vera auðveld skotmörk
Ef þú ert ekki með byssu, þá geturðu náttúrlega ekkert skotið á móti, heldur verður að reiða þig á að fá bara fallega og skemmtilega jarðarför.
Skotárás tekur svona 2-5 mínútur frá upphafi til enda.
Lögreglan kemur eftir 5-15 mínútur.
Reiknaðu.
Bann við árásarrifflum staðfest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.12.2015 | 02:20
Bakkus bjargar þér ekki frá íþróttabölinu!
Hvað er þá til ráða?
Íþróttagarpar líklegri til að drekka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2015 | 18:06
Þeir ætti að selja frökkum eitthvað af þessu
Þá vantar, hef ég tekið eftir.
Reyndar sýnist mér líka að kaninn mætti alveg dreifa eigin eignarhluta betur milli þegnanna. Ég fæ ekki betur séð að þeir séu latir og/eða illa græjaðir til að skjóta á móti.
"Byssuofbeldi og eign í Bandaríkjunum er fordæmalaus á meðal þróaðra landa heims..."
Sem eru? Skilgreiningin á "þróuðu landi" er? Er Brazilía ekki þróað land? En S-Afríka?
Það að kaninn geti beitt sínu ofbeldi með skotvopnum er náttúrlega tákn um ríkidæmi. Byssur kosta. Án peninganna væru menn að berja hver annan í hel með lurkum.
Án þess að ég sé neitt að draga úr skemmtanagildi þess að berja fólk með lurk, ég veit allt um hversu ljúft það er, fyrir líkama og sál.
Þess sem beitir, ekki þann sem fyrir verður sko.
"...en lífi tuga þúsunda Bandaríkjamanna lýkur með byssukúlu á hverju ári."
Come on: tölur. Google er til. Efstu 4, þú þekkir þetta.
"Þrátt fyrir nokkuð almennan stuðning við hertar reglur um byssueign ..."
Hér á landi kannski. Meðal okkar nazistanna. Ekki svo mjög í USA. Þar er þetta meira svona 50/50.
"Árið 2013 létust um 500 manns í þess lags fjöldamorðum samkvæmt víðustu skilgreiningu á hugtakinu."
Samkvæmt víðustu skilgreiningu eru framin 30% fleiri morð í Bretlandi en upp er gefið. Vegna þess að þeir telja ekki með þau sem ekki leysast, og manndráp af gáleysi, í sjálfsvörn osfrv.
Ef kaninn myndi telja eins og bretinn væru þar framin 2.7 morð/100K íbúa, en ekki 4.7/100K.
"Því til viðbótar sviptu hátt í 21.200 Bandaríkjamenn sig lífi með skotvopni."
Hefði verið betra ef þeir hefðu hengt sig? Hvernig?
"Orsökin er meðal annars sú að vopnaeign í Bandaríkjunum er fordæmalaus á meðal þróaðra ríkja,"
Orsök hvers?
Að fólk drap sig? Efa það.
Að fólk drap aðra? Efa það meira.
"Rannsóknir sýna að eftir því sem byssur er fleiri því meiri séu líkurnar á dauðsföllum af völdum þeirra."
Rannsóknir hafa sýnt að eftir því sem reiðhjól eru fleiri, því fleiri dauðsföll eru af völdum þeirra. Engin reiðhjól = engin reiðhjóladauði.
Sama gildir um allt. Það sem ekki er, það drepur þig ekki.
"Í ljósi gríðarlegs fjölda skotvopna í Bandaríkjunum þarf því engan að undra að ekkert ríki heims kemst með tærnar þar sem Bandaríkin hafa hælana í fjölda morða sem framin eru með skotvopnum."
... þú varst semsé ekkert að rannsaka það neitt nánar? Bara gleyptir upp eftir einhverjum vafasömum vefmiðli. Eitthverju VOX, sem er svona ámóta trúverðugt fyrirbæri og MBL.is.
Líttu aftur. Google getur stundum verið vinur þinn.
Mörg (fleiri en 3) lönd hlaupa hringi í kringum USA í þessum geira.
"Margir Bandaríkjamenn virðast gera sér grein fyrir þessu vandamálið..." (sic)
Fleiri en 3.
"Þeir sem vilja takmarka aðgengi að skotvopnum séu þeirrar skoðunar af almennum vilja til að fækka ofbeldisglæpum."
Þá eru þeir að fara rangt að því.
Byssur, nefnilega, verandi hlutir, valda ekki ofbeldi, eða glæpum.
Maður vill ekki bandaríkjamönnum svo illt að hafa af þeim vopnin. Þeir búa í fjölmenningarsamfélagi, sjáið til.
Og sjáíð bara hvað gerist í hvert skifti sem ríkið reynir að fækka vopnum í almannaeigu.
Aftur... research.
Blóðdropinn sem fyllir mælinn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2015 | 23:27
Þetta gerist oft í Afríku
Þar er fjöldinn allur af mis-stórum og miklivægum félagasamtökum sem dunda sér við svona.
Við heyrum stundum af því þegar Boko Haram lætur að sér kveða.
Frakkar hafa lent í tveimur svona á þessu ári. Eins og frægt er orðið. Obama hefru líklega bara gleymt því.
Og auðvitað myndi þetta gerast í þeim hluta USA þar sem er erfitt að verða sér úti um byssu, og fáir eru vopnaðir.
**Hann hefur margsinni hvatt þingmenn til að samþykkja það að bakgrunnur þeirra sem hyggist festa kaup á skotvopnum verði kannaður rækilega.
Þegar gert.
**Hann vill ennfremur leggja bann við almennri sölu á árásarrifflum og slíkum hernaðartólum. Þingmenn repúblikana hafa hins vegar verið þessu algjörlega andsnúnir.
1: andstætt stjórnarskrá.
2: kaninn hefur reynt að takmarka aðgengi að vopnum áður, nokkrum sinnum. Á eftir hefur morðum alltaf fjölgað. Mest fyrst (1911-1913,) en alltaf örugglega (eftir 1963.)
3: repúblikanar vita 1 & 2.
Besta lína:
"Hann sagði að fjöldamorð sem eru framin með skotvopnum í Bandaríkjunum eigi sér enga hliðstæðu í veröldinni."
Það sem gerist í bandaríkjunum gerist vissulega í bandaríkjunum. Rökrétt, það. Obama sjálfur, eða klúðursleg þýðing?
Ofbeldi án hliðstæðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |