16.4.2016 | 13:22
Þetta er fyndið
"Sádi-Arabía hyggst selja bandarískar eignir sínar, [...] verði frumvarp sem gerir það að verkum að ríki njóti ekki lengur friðhelgi bandarískra dómstóla vegna hryðjuverkaárása á bandarískri grund"
Er kaninn að skemma einhver framtíðarplön fyrir þeim?
"Þá muni þetta koma á óstöðugleika bandaríkjadollars, gjaldmiðilinn sem riyal, gjaldmiðill Sádi-Arabíu, er bundinn við."
Hmm... hvar á ég að byrja?
Auðvitað: HaHaHa!
Sádar eru of tengdir kananum. Þeir eru sífellt að senda hryðjuverkamenn út um allar trissur, (skiljanlega, þeir vilja frekar hafa slíka menn i útlöndum en heima við. Bara skynsamlegt hjá þeim) og ættu ekkert að verða hissa á einhverjum viðbrögðum á endanum.
Reyndar finnst mér kaninn fara sér heldur hægt.
Það verður ekkert úr þessu.
Hóta að selja allar bandarískar eignir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2016 | 13:09
Bíðið bara þar til bílar verða sjálfkeyrandi.
Þá gæti einhver 12 ára gutti stolið bílnum þínum meðan þú ert enn í honum, með einhverju appi, og keyrt beint í sjóinn.
"Langir biðlistar hafa myndast í Þýskalandi eftir þessum Dacia-bílum en Renault notar í þessa framleiðslu afganga úr bílum sem hætt er að framleiða. Þeir eru ekki beint fallegir en eru hræódýrir og einfaldir."
Smekksatriði, eða er fólk að láta verðmiðann segja sér hvernig hluturinn lítur út?
Ný tækni við bílþjófnaði vekur ugg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2016 | 15:53
Hvernig fékk hún hann?
Hann var ekki ófáanlegri en svo, þá.
Klæddist ófáanlegum kjól á frumsýningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.4.2016 | 15:26
Ah... *eldflaugahreyfill...*
Eitt augnablik velti ég fyrir mér hvað einhver leigubílastöð í Reykjavík væri að vesenast með atómbombur.
Hreyfill tryggir kjarnorkuárás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.4.2016 | 23:38
Lítur út eins og Chrysler 300
... sem er reyndar Lancia núna, sem aftur er FIAT.
Bandarískur bílaiðnaður er á hausnum, mestmegnis.
Samt: hvað ætli stór hluti af þessum sé ættaður frá USA? Ég myndi giska á að vélin sé þaðan, það er klassískt. Allir rússneskir bílar voru amerískir að uppruna fram að heimstyrrjöld, skilst mér.
Eftir það voru það bara trukkar og limmósínur. Volgan var líka svolítið grunsamleg. Gott ef það var ekki Ford Falcon eða Plymouth Valiant.
Þetta?
Nah. Eins og ég sagði, lýkist Chrysler 300 of mikið. Zil hafði það þó að þeir líta all-furðulega út.
Pútín fær nýja límúsínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.4.2016 | 16:49
Vandamálið ekki óskiljanlegt, þó sumir virðist halda annað
Katrín Jakobsdóttir segir til standa að halda kröfu stjórnarandstöðuflokkanna um vantraust, þingrof og kosningar, til streitu.
Það má svosem.
Hitt er annað, að ég hef slæma reynzlu af þingrofi svona, og kosningum. Ég man nefnilega vel eftir hálfvitunum sem tóku við eftir slíkt seinast, og vil helst ekki svoleiðis aftur.
Þá væri auka-kjörtímabil með Sigmundi betra.
Katrín segir að það sem henni finnist athugavert við málið,[...] sé að enn hafi ekki borist svör frá stjórnarflokkunum um hvernig eigi að taka á þeim stóra vanda sem skattaskjól eru almenn. Vandamálið sé mun stærra en svo að það endi með afsögn Sigmundar.
Hvað finnst henni ætti að gera? Bara forvitni í mér.
Bara í þessum leka eru 600 félög sem tengjast Íslandi og 800 nöfn (einstaklingar?) sem sýnir okkur að hér er lítill, fámennur hópur auðugs fólks sem er að kjósa að nýta sér þessi skattaskjól í einhverjum tilgangi.
"í einhverjum tilgangi?" Skattaskjól eru, eins og felst í nafninu, til þess að spara pening.
Sýnist mér augljóst að 600 félgum sem tengjast íslandi finnst skattkerfið í útlöndum hérlendu kerfi fremra, og hafa bolmagn til að notfæra sér það.
Eða hvað?
Þetta er ekki flókið og ekkert dularfullt.
Við vitum alveg að þó svo að það kalli ekki á að fólk sé að svíkja undan skatti þá snýst þetta um leynd á eignarhaldi...
... ja, þetta eru, eins og ég hef bent á áður: viðkvæmar persónuupplýsingar, sem mér er sagt að eigi þá að halda leyndum í 30-80 ár.
Eða hvað?
...og að fylgja öðrum reglum en við höfum sammælst um að fylgja í viðskiptaháttum," segir Katrín.
Við? Við hver?
Þetta virðist allt vera löglegt, í það minnsta hefur sá frómi maður Sigmundur ekki gert neitt ólöglegt með því að eiga þarna pening. Við getum heldur ekki gert ráð fyrir að öll þessi, jafnvel einhver þessara félaga eða einstaklinga sé með eitthvað ólöglegt í gangi, sem bendir eindregið til þess að þeir séu einkitt að fylgja þeim reglum sem "við" höfum sammælst um.
Lögum, sem sagt.
Óþarfi að vera eitthvað að ljúga úr ræðupúltinu. Jafnvel um fólk og fyrirtæki sem þér kann að vera í nöp við.
Ég hef ekki heyrt nokkurn mann tala um hvernig við eigum að taka á þessu ...
Talaðu við SUS, svona lagað er eitt af þeirra fjölmörgu áhugamálum, veit ég, ég er viss um að þeir koma með nokkrar hugmyndir. Þó ekki væri nema ein, þá væri það samt meira en ekkert.
Við í VG höfum ekki trú á því að áframhaldandi samstarf þessara flokka muni skila neinum árangri í að takast á við þetta stóra mál.
Ég, ekki í flokki, hef ekki trú á því að VG leysi neitt.
Vandamálið stærra en Sigmundur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.4.2016 | 15:32
Ég skil þetta alveg
Það er fyllilega eðlilegt að vilja ekki borga skatt.
Það sem mér finnst skrýtnast í þessu, er að liðið sem setur skattalögin sér að þau eru svo slæm að þau þurfa að geyma peningana sína þar sem skattalögin ná ekki yfir þá.
Væri ekki meira vit í því hjá þeim að bara einfaldlega breyta þessum lögum, fyrst þau eru þeim svo illþóknanleg?
Ég myndi ekki mótmæla því. Það kæmi sér vel fyrir okkur öll. Okkur hin, sem getum ekki verið að setja launin okkar á reikning þar sem við þurfum að borga skatt af *verðbótunum.*
Það getur orðið ljótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2016 | 13:24
Þetta verður ekkert minna grunsamlegt
Ekki ríkir leynd til 110 ára yfir skjölum stjórnsýslunnar um uppgjör og slit viðskiptabankanna eftir hrun, heldur lúta þau hinni almennu reglu laga um opinber skjalasöfn um að skjöl sem geyma viðkvæm fjárhagsmálefni einstaklinga eða upplýsingar sem varða almannahagsmuni skuli vera lokuð í 80 ár. Hægt er að rjúfa leynd yfir slíkum skjölum með samþykki þess sem þau varðveitir eða úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Hljómar eins og einhverjir opinberir einstaklingar hafi verið að gera eitthvað af sér, ekki satt?
Eitthvað sem varðar almannahagsmuni.
Hrunið var allt meira og minna byggt á *viðkvæmum fjárhagsmálefnum einstaklinga.*
Ekki 110 ára leynd yfir bankaskjölunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |