15.10.2015 | 18:07
Það hefur þegar verið gert
Hér á landi.
Man vel eftir nammi sem innihélt úrval af pöddum.
Sumir smökkuðu þetta, og þótti sínum hvað.
Ekki vissi ég til að það hefði verið bannað, né gerð hefði verið tilraun til þess að banna þetta.
Má markaðsetja skordýr sem mat? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2015 | 20:10
En með semingi.
Þvílíkar kvaðir eru á þessu hjá þeim.
"Lög þessi gilda um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni."
Er enn að bíða eftir lögum um "staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni." Hvað er vandamálið?
"Ráðherra skipar nefnd um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni til fjögurra ára í senn."
Hvers vegna?
"Hlutverk nefndarinnar er að veita leyfi til staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni."
Ah... stjórn. Auka bögg fyrir fólk. Þetta venjulega.
"Við staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni er skylt að nota kynfrumu frá að minnsta kosti öðru væntanlegra foreldra, eftir því sem við á."
Þarf þetta? Var þetta ekki hugmyndin allan tímann? Eða er ég að misskilja eitthvað?
Halda þeir kannski að einhver sé að fara að búa til einskonar útúngunarstöð? Halda menn að það sé hætta á því? Vegna þess að... ?
"Eingöngu er heimilt að nota gjafakynfrumu við staðgöngumæðrun hjá einhleypum einstaklingi eða ef frjósemi annars væntanlegs foreldris er skert,"
Ríkið skilur ekki merkingu orðsins "einhleypur."
"Við staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni er óheimilt að nota kynfrumur staðgöngumóður,"
Það hefði vissulega gert prósessinn einfaldari... en á sama tíma hefði verið um að ræða svolítið annað... nefnilega að til hefði orðið "stjúpforeldri."
" Við staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni skal nota stýrðan meðferðarhring við uppsetningu fósturvísis."
I have no idea what the fuck that means.
Ríkið...
Maður þarf asperín eftir að hafa lesið lögin stundum.
Staðgöngumæðrun verði leyfð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2015 | 19:38
Útrás grænnar atvinnustarfsemi
Þeir reka sig fljótt á, sýnist mér, að allt er bannað á Spáni líka.
Fjórir Íslendingar handteknir á Spáni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2015 | 18:41
Það er rétt hjá honum
Svona: eitt dæmi um að einhverjir hafi framið þjóðarmorð á vopnuðu fólki.
Einhver?
Hefðu stöðvað helförina með byssum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2015 | 19:06
Vá, gott skot.
Íran á ekki einusinni landamæri að Sýrlandi.
Stýriflaugar hæfðu Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2015 | 20:19
Nei, *eigandinn* geldur fyrir eyðzluna
Nema þú meinir að þessi bali sé geldur...
Whatever.
Sjöunda kynslóð VW Golf er bíll sem hefur unnið til fjölda verðlauna...
Það hef ég aldrei skilið. Fyrir hvað?
[Alltrack] er eins og hefðbundinn langbakur með 20 mm meiri veghæð og er hannaður fyrir Norður-Evrópu og þá auðvitað Ísland líka.
Hljómar vel.
VW dísilbílar eru ekki hátt skrifaðir þessa stundina
Hjá *ykkur* já. Hjá mér... voru aldrei eitthvað til að eltast við. Eða VW yfir höfuð.
...auk þess er búið að setja á hann meiri plasthlífar við hjólboga, stuðara og sílsa.
Vantar ekki svoleiðis, skil ekki tilganginn. Safnar bara raka.
Farangursrýmið [...] rúmar þess vegna tvö golfsett án þess að fella niður sæti.
... ha? Bara tvö?
Þegar vélin er komin á snúning er hann fljótur að éta upp kílómetratölurnar ...
Svo neyðistu til þess að stökkva yfir gil til þess að losna við fégráðuga útsendara yfirvalda, sem koma á eftir þér með blikkandi ljós.
Veggrip er allgott í öllum eðlilegum akstri
4X4.
...en undirstýring verður áberandi þegar lagt er mikið á stýrið.
Semsagt, ekkert alltof góðir aktureiginleikar. 2000 módel Honda Civic Station yfirstýrir. Þann bíl keyrir maður ekkert útaf fyrir slysni.
Golf Alltrack notar Haldex kúplingu til að stjórna átaki fjórhjóladrifsins en venjulega keyrir bíllinn bara í framdrifinu til að halda niðri eyðslu. Þegar kerfið skynjar að bíllinn sé að fara að missa grip á einhverju hjóli tekur fjórhjóladrifið við.
Öll þessi auka þyngd, og maður fær bara *framdrif.*
Eins og fjallað hefur verið all-ítarlega um er mengunarsvindl VW nú á allra vitorði. Þar snerist svindlið um að ná niður mengunartölum en ásamt því hafði svindlið áhrif á eyðslutölur bílanna.
Já. Þeir eyða litlu eða menga lítið, eftir því hvrot er verið að mæ´la eða ekki. Sniðugt, en kolólöglegt.
Þeir sem skrifa reglulega um bíla og aðrir sem fylgjast vel með hafa tekið eftir að uppgefnar eyðslutölur nýrra bíla eru í engu samræmi við rauneyðslu og munar það oft ansi miklu.
Fyrir 20-25 árum þá reiknuðu menn bara með því að bíll eyddi þyngd í kg/100 á undraðið. Semsagt, 1800 kg bíll eyddi þá ~ 18/100. þegar hann var nýr.
Þetta er ekki alveg þannig núna.
Sú er bersýnilega raunin í Golf Allrad sem á að eyða 6,5 lítrum á hundraðið samkvæmt þessum opinberu tölum, en raunin var að eyðslan hékk í kringum 13 lítra á hundraðið í innanbæjarakstri þar sem uppgefin eyðsla á að vera 8,1 lítri.
Svo margar spurningar:
1: Var uppgefin eyðzla 6,5 eða 8,1?
2: Þið vitið að þetta er 180 hestafla bíll?
3: Vissuði að hann er meira en 1500 kg án ökumanns?
Og hann er 7.8 sekúndur í 100. Hvað eru menn að nöldra? 13 er bara normalt. Og innanbæjar í þokkabót.
Ef þið viljið ekki að bíllinn eyði 13 + á hundraðið, fáið ykkur þá léttari og aðeins kraftminni bíl sem er ekki með 4X4 fítusnum.
Beinir keppinautar VW Golf Alltrack eru fáir ef einhverjir hér á landi og er það helst Skoda Oktavia Scout sem keppir við hann þótt stærri sé.
Og Subaru. Það ku vera hægt að aka Subaru yfir urða og grjót án mikilla vandkvæða.
Góður vagn en geldur fyrir eyðsluna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2015 | 16:09
Útúrdópaðir hommar eru bara ekkert fyrir byssur
Sorrý...
En af hverju ætli það sé?
Fólk er ekki mjög aktívft, svona í bláum skugga, og allt það. Náttúrlega.
Síðasta byssubúðin lokar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2015 | 20:58
Þegar Reagan var fylkisstjóri í Kalíforníu...
lét hann sleppa öllum vitfyrringunum úr hælunum þar sem verið var að spökulera í þeim. Svo varð hann forseti. Gerði trúlega það sama á landsvísu.
Svo skaut einhver vitfyrringurinn hann.
Hmm...
Byssulöggjöf skiptir ekki máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2015 | 20:13
Hver vill láta taka þetta úr?
Ekki myndi ég vilja að minn bíll færi að eyða 10-15% meira, bara til þess að koma betur út á einhverju bogus mengunarprófi.
Er bíllinn þinn gallaður? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2015 | 19:55
Hljómar eins og bók eftir Elí Freysson
"Meistarar Dauðans."
Kæmi vel út með "Ógnarmána" og hinni þarna, sem ég man ekki hvað hét en var líka ekkert nema grimdark alla leið í gegn.
Ekki allra, en betri en Eragon.
Gefur út plötu með Meisturum dauðans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)