10.2.2015 | 16:51
Sumt bílarnir, sumt eigendurnir
Takið eftir þeim bílum sem ekki orsökuðu dauða.
Hverjir aka venjulega um á svona?
Dauðsföllum á nýrri bílum snarfækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2015 | 16:49
Ljóti andarunginn varð loks að ljótum svan....
Fyrir aldamót voru jeppar og aðrir fjórhjóladrifsbílar frekar einhæf fyrirbæri og ekki mikið pláss fyrir nýjungar.
Ja...
Það var Lada Sport, sem færði okkur jeppa byggðan á fólksbíl - sjálfberandi grind.
Subaru færði okkur svo fólksbíl með alvöru torfærueiginleika.
Svo var þar áður Wagoneer, sem var upphafið að jeppa-sem-lúxusbíl fyrirbærinu sem tröllríður öllu núna.
Á eftir Wagoneer kom Ford Exploder... ég meina Explorer, sem færði okkur það sem alla langaði alltaf í: stóran, hægfara fólksbíl með enga aksturseiginleika og arfaslappa eldsneytiseyðzlu.
Hvað hefur svo gerst eftir aldamót?
...
Einhver?
Þetta hefur breyst mikið á undanförnum árum, meðal annars með tilkomu kúpujeppa eins og BMW X6 sem kom fyrst fram á sjónarsviðið 2008.
Kúpujeppi? What the fuck?
Reyndar var hann forljótur til að byrja með
Let's face it, hann er það enn.
260.000 slíkir hafa selst síðan 2008.
Hver kaupir þetta eiginlega?
...nú er hægt að fá hann með ... búnaði sem keyrir bílinn sjálfvirkt í umferðaröngþveiti.
Illa líst mér á það. Er ekki hægt að fá svona búnað sem forðar manni rá umferðaröngþveitum?
Þegar komið er í aftursæti kemur fótarými nokkuð á óvart
Já, það kemur enn alltaf á óvart ef það reynist pláss i aftursætum.
Þegar komið er að farangursrými er það þokkalegt á alla kanta, nema niður.
Ha?
Það sem slær ökumanninn þó mest út af laginu er hversu útsýni aftur er lélegt og hefur undirritaður aldrei séð það jafnslæmt og í þessum bíl, ekki einu sinni í Koenigsegg CCX.
Já... ég sé einmitt fyrir mér að næst fái ég mer annað hvort Hondu Accord, eða svona Koenigsegig...thingy... svona til að keyra í og úr vinnu og svona.... en fyrst það er ekki hægt að sjá neitt út um afturrúðuna þá er líklega bast að endurskoða það.
Feh...
Ef menn eiga paninginn, og vilja endilega kaupa BMW slyddujeppa, kaupið X5. Það er bíll sem er þægilegt að keyra, þó hann sé svolítið boring, og nóg pláss allstaðar fyrir alla.
Ljóti andarunginn orðinn stór | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2015 | 20:30
Meira bullið í honum Jakob. Aftur.
En hann er náttúrlega maðurinn sem sagði okkur að RÚV ksotaði bara 2000 kall á ári.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, er skotinn í þeirri hugmynd að stofna sérstakt ráðuneyti undir menningarmálin.
Af hverju?
Yfirskrift þingsins var Sjálfstæðisbarátta 21. aldarinnar - Þurfum við sérstakt menningarmálaráðuneyti? Meðal framsögumanna voru Charlotte Bøving, leikari og leikstjóri, Daði Einarsson, listrænn stjórnandi, Hulda Proppé, sérfræðingur á rannsóknar- og nýsköpunarsviði Rannís, og Þorleifur Arnarson leikstjóri.
Hagsmunaaðilar, sem sagt.
Yfirskrift þingsins speglaði þá staðreynd að skapandi greinar eru stærsti vaxtabroddur íslensk atvinnulífs á Íslandi og í Evrópu, og gott ef ekki heiminum öllum, segir Jakob.
Þýðir það að þá þurfi sérstakt, kostnaðarsamt ráðuneyti undir það?
Jakob segir þá hugmynd að þjappa mörgum málum saman í stór ráðuneyti barn síns tíma
Það mætti nú draga úr tjóninu sem öll þessi ráðuneyti valda með því að draga málaflokka úr klóm þeirra, og jafnvel hreinlega hætta með nokkur þeirra.
Það sparar peninga sem við eigum ekki.
og bendir á að skapandi greinar heyri í raun undir fimm ráðuneyti; mennta- og menningarmálaráðuneytið, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, ráðuneyti þjóðmenningar, þ.e. forsætisráðuneytið, utanríkisráðuneytið og fjármálaráðuneytið.
Þarna nefnir hann nokkur ráðuneyti sem mætti alveg þynna og grisja aðeins.
Mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson kom og hélt alveg þrumuræðu, mjög góða, og sagði að í sjálfu sér hugnaðist honum þessi hugmynd alls ekki illa,
Hann er jú ríkiskall, alveg til í að stækka báknið.
Auðvitað getur hann ekki sagt það einn og sér að slíkt verði, en það að sitjandi mennta- og menningarmálaráðherra sé skotinn í hugmyndinni, það eru góðar fréttir fyrir allar þær þúsundir Íslendinga sem starfa á þessum vettvangi,
Og slæmar fréttir fyrir skattborgarann.
Jakob segir það gamla mýtu að listamenn séu einhverjar styrkjaguddur með betlistafi.
Annað ráðuneyti sérlega stofnað fyrir þá myndi renna stoðum undir þá skoðun í huga almennings.
Skapandi greinar séu víða stærsta útflutningsvarann, t.d. í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Já, það eru vissulega áhugaverðar fréttir, að vopnasala sé nú talin með skapandi greinum.
Ráðuneyti skapandi greina? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2015 | 15:34
Ég man þá tíð er VG réðu einhverju
Katrín Jakobsdóttir, [...] sagði í máli sínu við upphaf flokksráðsfundar Vinstri grænna,[...] mikilvægt að flokkurinn taki upp á sína arma hugtök sem hafa of lengi verið í gíslingu hægri aflanna. Nefndi hún þar hugtökin frelsi, stöðugleika og öryggi.
En hingað til hefur flokkurinn bara ekkert staðið fyrir þessi hugtök.
Má búast við einhverri hægri-sveiflu hjá þeim í framtíðinni?
Frelsið sem hefur verið í einkaeign Sjálfstæðisflokksins um langt skeið.
Svolítið merkilegt, þar sem sá flokkur er nú ekki beint hámark frjálshyggjunnar.
Sjálfstæðisflokknum tókst svo vel að eigna sér frelsisorðið að margar aðrar stjórnmálahreyfinga veiguðu sér við að tala um það,
Það er nú ekki alveg rétt, en hvað um það. Hún heldur það.
sagði Katrín og bætti við að frelsi Sjálfstæðisflokksins hafi hins vegar þróast út í að vera aðeins frelsi hinna fáu og efnamiklu til að maka krókinn, iðulega með sérstakri ríkisaðstoð á kostnað frelsis fjöldans.
En það hefur einmitt verið stefna allra flokkanna. Svo ég hef séð með eigin aukum, að minnsta kosti.
Eini munurinn er kannski sá að Sjálfstæðisflokkurinn leyfir öðrum en bara örfáum útvöldum að verða auðugir. Flokkur Kötu er hinsvegar mikið á móti því að óflokkstengt fólk eigi eignir.
Sagði hún frelsi fólks til að sækja sér menntunar og heilbrigðisþjónustu við hæfi hins vegar gleymast.
Var hún að rifja það upp núna áðan? Gott, batnandi manneskju er best að lifa.
Sömu sögu er að segja um frelsi fólks til að búa í samfélagi þar sem dagvinnulaun duga fyrir mannsæmandi lífi.
Ég gleðst ef það er hin nýja stefna VG. Það er vissulega mikil stefnubreyting, alveg 180° frá því sem alltaf var, en hey...
Þegar skorið er niður þannig að þjónusta við almenning rýrnar, aðgangur eldri en 25 ára að framhaldsskólamenntun er skorinn niður, gjöld fyrir læknisþjónustu eru hækkuð, fjárfestingar í rannsóknum og nýsköpun eru skornar niður, þannig að framtíðartækifærum í landinu okkar fækkar, þá er verið að skerða frelsi fjöldans til að lifa góðu lífi, sagði Katrín og bætti við að Vinstri græn ættu að taka hugmyndina um frelsi fjöldans og gera það að sínu.
180°.
Vék Katrín sér því næst að stöðugleika. Velti hún upp þeirri spurningu hvort stöðugleiki snerist einungis um að þeir sem eru efnameiri auki hlut sinn enn frekar.
Ja, seinast þegar VG fengu að ráða dró heldur á milli þeirra efnameiri og allra hinna, svo... án þess að ég sé að ætla henni skoðanir, þá er það það sem hún hefur verið að stuðla að.
Hvers vegna veit ég ekki.
Þannig er staðan á Íslandi. Ríkustu 10 prósentin eiga 70 prósent alls auðs. [ ] En snýst skattastefna núverandi stjórnvalda ekki einmitt um að halda því ástandi stöðugu?"
Skattastefna seinustu stjórnar stefndi að því að auka bilið. Og það var að svínvirka. Núna, með nýrris tjórn hefur aðeins létt á þeim sem hafa verðtryggð lán. Þar hjálpar reyndar bensínverðslækkun mikið, það er ekki allt D & B að þakka.
Þá sagði Katrín einnig mikilvægt að endurskoða hugtakið öryggi. Í stað þess að tengja það einvörðungu við hugsanleg vopnakaup lögreglunnar hlyti hugmyndin um öryggi að snúast um að byggja upp friðsamt jafnaðarsamfélag.
Af hverju var hennar fólk þá að panta öll þessi vopn?
Þar sem fólk getur lifað mannsæmandi lífi með aðgengi að menntun og heilbrigðisþjónustu og öðrum mikilvægum þáttum. Eða þak yfir höfuðið, sem er það sem unga kynslóðin sér ekki fram á núna.
Af hverju gerði hún og hennar lið ekkert í þeim málum annað en að gera þau verri?
Öryggi hefur nefnilega ekkert með skotvopn eða forvirkar rannsóknarheimildir að gera, sem enn og aftur hefur skotið upp kollinum hjá hæstvirtum innanríkisráðherra, sagði hún.
Jú og nei...
Vopnuð lögregla hjálpar ekkert nauðsynlega, sjá td sum fylki USA, þar sem lögreglan mætir alltaf þegar búið er að myrða alla, og á sama hátt Noreg og Frakkland, þar sem það sama á við.
Og Frakkar hafa haft forvirkar rannsóknarheimildir lengi, en samt... hjálpaði þeim ekkert.
Frelsi hinna fáu til að maka krókinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2015 | 15:17
Það er bara rétt
Þeir eru á móti.
Þeir eru á móti þér og mér.
Þeir eru á móti heilbrigðiskerfinu.
Þeir eru á móti millistéttinni.
Þeir eru á móti þeim lægst launuðu.
Þeir eru á móti eignafólki.
Þeir eru á móti ökumönnum.
Þeir eru á móti nammi.
Eru þeir með einhverju? Já, þeir eru reyndar fylgjandi einu:
Þeir eru með því að Íslendingar borgi skuldir einkafyrirtækja.
VG stimplaðir sem á móti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2015 | 14:58
Þýðum þennan texta á 2005 íslensku:
Jórdönsk yfirvöld hafa boðað harðar aðgerðir á hendur Ríki íslams eftir að þau brenndu flugmann í her landsins lifandi.
Jórdanía er eitt nokkurra arabaríkja sem hafa tekið þátt í loftárásum Bandaríkjahers á Ríki íslams í Írak og Sýrlandi. Flugmaðurinn, Maaz al-Kassasbeh, var tekinn höndum af liðsmönnum Ríki íslams í Sýrlandi á aðfangadag er flugvél hans var skotin niður. Fjölskylda hans krefst þess að samtökunum verði eytt af yfirborði jarðar.
Morðið á al-Kassasbeh hefur aukið stuðning almennings í Jórdaníu við baráttuna við Ríki íslams en samtökin hafa lagt undir sig stór svæði í Sýrlandi og Írak.
Í leiðara ríkisdagblaðsins, Al-Rai í dag segir að Jórdanía muni beita öllu brögðum til þess að vernda gildi sín og sannfæringu. Nú sé liðsmanna glæpasamtakanna leitað. Ekkert hefur verið gefið upp um næstu skref en heyrst hefur að Jórdanía muni jafnvel taka þátt í landhernaði á hendur Ríki íslams. Jórdanar hafa ekki tekið þátt í slíkum hernaðaraðgerðum í Miðausturlöndum síðan árið 1973 er jórdanskir hermenn voru sendir til Sýrlands þar sem þeir tóku þátt í sameiginlegum aðgerðum arabaríkjanna gegn Ísrael í Yom Kippur stríðinu.
Abdullah II konungur stytti heimsókn sína til Bandaríkjanna eftir að myndskeiðið af hrottalegri aftöku Kassabeh var birt. Hann kom til Amman í gær og segir hann að morðsins verði hefnt. Snemma í gærmorgun tóku Jórdanar tvo íraska fanga, Sajida al-Rishawi og Ziad al-Karboli, af lífi í hefndarskyni fyrir morðið á flugmanninum.
Á ekkert sameiginlegt með íslamtrú
Fjölmargir tóku þátt í fundum í Amman og borginni Karak, heimaborg flugmannsins, í gær. Meðal þeirra er faðir flugmannsins, Safi al-Kassasbeh, sem segir liðsmenn Ríki íslams vera hryðjuverkamenn og heiðingja sem þekki hvorki mannréttindi né mannúð. Alþjóðasamfélagið verður að sameinast um að eyða Ríki íslams, segir hann.
Ríki íslams hafði boðist til þess að þyrma lífi Kassasbehs og láta japanska blaðamanninn, Kenji Goto. lausan gegn lausn Rishawi. Svo virðist sem flugmaðurinn hafi verið tekinn af lífi áður en Ríki íslams lagði fram tilboð sitt. Goto var síðar afhöfðaður.
Rishawi, 44 ára, var dæmd til dauða fyrir aðild að þremur samtengdum sprengjutilræðum í Amman árið 2005. Sextíu létust í árásunum. Hún var nátengd írösku samtökunum sem lögðu grunninn að stofnun Ríki íslams og var hún talin mikilvæg á táknrænan hátt fyrir hryðjuverkasamtökin.
Í kjölfar drápsins á flugmanninum ákváðu Sameinuðu arabísku furstadæmin að hætta þátttöku í loftárásum Bandaríkjahers. Er það gert í öryggisskyni. Aftur á móti eru furstadæmin hvergi nærri hætt stuðningi við árásirnar og mikilvægur hlekkur í baráttunni við samtökin, samkvæmt upplýsingum AFP úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna.
Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa lýst yfir hryllingi og reiði vegna morðanna á gíslum Ríki íslams. Meðal þeirra er forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, sem segir grimmd Ríki íslams ná út fyrir allt og hún eigi ekkert sameiginlegt með íslamtrú.
***
Smáatriði, ég veit, en menn töluðu betra mál fyrir 10 árum.
Hefndinni hvergi nærri lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2015 | 14:48
Þeir eru ekkert að spara peningana þarna í Frans
Ekki er mér ljóst hvað olli því að þeir ákváðu allir sem einn að aka um á díselbílum í stað annarra, skemmtilegri ökutækja, en grunar að það tengist því að fransmenn eru sérvitrir, upp til hópa.
Ef þeir vilja endilega aka um á bílum sem eru vel til þess fallnir að draga þunga hluti langar leiðir, þá er það þeirra mál.
Ef þeir eru til í að greiða 3X hærri viðhaldskostnað, þá er það þeirra mál.
Að það þýði að þeir andi að sér svifriki í meira mæli en annars, ætti vart að koma mikið að sök, vegna þess hve mikið þeir reykja.
Nú er svifrikið sem sagt farið að herja svo mjög á þá að til vandræða horfir.
Á meðan erum við hérna megin hafsins að reyna að búa til meira svifrik, okkur til heilsubótar.
Og svo vilja þeir skifta diselnum út fyrir rafmagn... og úr hverju er franskt rafmagn? Það er sko eins gott að það sé úr kjarnorku, því annars kemur bara svifrikið til þeirra úr annarri átt.
Gamlir dísilbílar keyptir út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2015 | 14:42
... og?
4.2.2015 | 20:31
Næstum 3X fleiri en hér
Merkilegt.
Samkvæmt lista á wiki (http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_traffic-related_death_rate) fórust á íslandi 3.8/100K íbúum í umferðarslysum árið 2013.
Árið 2012 fórust 11.6/100K bandaríkjamönnum þannig.
Ekki er mér ljóst af hverju er verið að draga skotvopn inní þetta...
Skoðum CDC (center for disease control, svona eins og Landlæknir hérna)
Heildarfjöldi dauðsfalla með hjálp skotvopna:
Fjöldi sjálfsmorða með skotvopnum: 19.990 (2/3 af öllum dauðsföllum tenguð þeim tækjum.)
Heildarfjöldi sjálfsmorða í USA: 39,518 (12.7/100K) (2011, sýnist mér)
Heildartíðni sjálfsmorða á íslandi: 18.3/100K (2009)
Bandaríkjamenn drepa sig síður. Kannski eru þeir þá hamingjusamari en við? Þeir hafa jú meiri tækifæri til að iðka fjölbreyttari áhugamál en við.
Sumir segja að aðgangur að skotvopnum auki fjölda sjálfsmorða. Svo virðist ekki vera. Þið getið dundað ykkur við að skoða það með líkindariti og kíkvaðratprófi.
Byssurnar brátt mannskæðari en bílslysin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.2.2015 | 18:58
Með þeirra minni glæpum
Einu sinni datt manni að nefni Nelson mandela í hug að nsiðugt væri að útrýma lömunarveiki í afríku.
Það gekk ágætlega, þar til hann hitti fyrir Boko Haram.
Þeir voru mjög á móti öllu svoleiðis stússi. Þeir drápu alveg helling af fólki sem var að dunda sér við að bólusetja fólk.
Það var 1994-6.
Við hverju er svosem að búast við af hóp sem bókstaflega kallar sig "bók bönnuð?"
Skáru þorpsbúa á háls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |