30.9.2017 | 15:19
Miðað við skoðanakannanir munum við fá:
Launalækkun í formi verðbólgu
kaupmáttarrýrnun í formi skattahækkana
Stöðnun með íþyngjandi reglugerðum
og fullt af þrítugum sýrlenzkum flóttabörnum frá Lýbíu sem má ekki gagnrýna né fá til að aðlagast.
Öryrkjar fá *ekkert*
Aldraðir fá *ekkert.* Ekkert frekar en venjulega þ.e.a.s. Ja, þeir geta fengið launalækkun og skattahækkun eins og aðrir.
Við fáum líka lán til þess að fá hærri afborganir - eitthvað verða skattarnir að fara í, ekki fara þeir í vegegerð. Og athugið hér að þetta verða hærri afborganir greiddar af lægri tekjum, vegna þess að:
Útgerðin mun færast á færri hendur
Annar iðnaður mun færast á færri hendur eða hreinlega hverfa.
Peningar munu streyma úr landi.
Þetta er stefnan sem fólk vill. Virðist mér.
Sýnir að kjósendur vilja stefnubreytingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.9.2017 | 15:19
Hvað gerist ef þeir komast ekki á jötuna?
Hvað ef flokkur sem tekur lán uppá hvað segjum við, 20 millur, kemst ekki á þing, og því ekki á ríkisjötuna? Fer svo á hausinn?
Hver borgar? Ná þeir alltaf einhvernvegin að lauma þessu á skattborgarann, eða vill svo ólíklega til að þeir beri ábyrgð sem eiga? Eða eitthvað annað?
Spyr sá sem ekki veit.
Lánsamir og lánlausir flokkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2017 | 19:29
Það þarf enginn að lýsa yfir stríði
Það hefur verið vopnahlé þarna síðan áður en foreldrar mínir fæddust.
Það er hvenær sem er hægt að byrja að sprengja aftur. Formsatriði hafa verið uppfyllt.
Sakar Bandaríkin um að lýsa yfir stríði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2017 | 19:27
80%
Eru ekki að kalla eftir þessu.
Ákall um að Katrín verði ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.9.2017 | 20:49
Hvað hafa Pakistanar gert þeim hjá MBL?
Að vilja þá feiga í hundraðatali?
"Hundruð látist í fagnaðarlátum"
Hundruð þeirra deyji í fagnaðarlátum, tilkynna þeir okkur. En hvers vegna? Lesum fréttina, og kynnum okkur dularfullt hatur MBL á þessum framandi mönnum:
"Á sama tíma og gríðarleg fagnaðarlæti brutust út um gjörvallt Pakistan, vegna stórkostlegs sigurs krikketlandsliðsins gegn Indlandi í sumar, lá hinn fimm ára Noeen látinn í norðvesturhluta landsins. Dánarorsökin: Fagnaðarkúlnahríð."
... og? Á ég að fagna því?
Mér er bara alveg sama. Af eða á.
"Í Pakistan hefur löngum tíðkast að fagna brúðkaupum, trúarathöfnum og íþróttasigrum með því að skjóta byssukúlum út í loft."
Og þið eruð að komast að þessu núna fyrst?
"Skotvopn eru auðfáanleg á svörtum mörkuðum við landamærin að Afganistan og byssuglæpir tíðir í stærstu borgum landsins."
Þetta eru auðfinnanlegar upplýsingar, sem vi getum borið saman við önnur lönd. (Tökum samt eftir að við fáum aldrei hlutfall glæpa þar sem skotvopn koma við sögu vs þar sem önnur vopn eða engin eru notuð.)
Wiki segir að þar séu framin 7.81 morð á hverja 100K íbúa, sem setur á í 67 sæti yfir lönd með hæstu morðtíðni - höfum í huga hér að þetta er með frjálsri aðferð, þið verðið bara að giska á hve margir af þessum er skotnir, vs stungnir, grýttir, hengdir osfrv.
Fyrir ofan eru Katar, Írak og Guadalupe, fyrir neðan Eþjópía Comoros og Grenada.
Fyrir fjölda skotvopna gefur Wiki 11.6 byssur á 100 íbúa, sem setur þá í 55 sæti. Á eftir okkur. Reyndar eigum við íslendingar þrefalt fleiri vopn en pakistanar. Danir eiga 12 byssur á hverja 100 íbúa, þeir eru í 52. sæti.
"Eftir að Pakistan gjörsigraði Indland á Champions Trophy í júní sl. létust að minnsta kosti tveir í fagnaðarlátunum og hundruð særðust."
Þar varð MBL ekki að ósk sinni, nema að mjög litlu leiti. HAHA!
"Krikket-aðdáendur létu sér nefnilega ekki nægja að gleðjast í góðra vina hóp, heldur hleyptu óspart af skotvopnum sínum í sæluvímunni."
... ha? Fóru þeir afsíðis til þess að plaffa út í loftið? Hljómar mjög ólíkt arabískum mannfagnaði, það. Venjulega skjóta þeir sem hafa efni á slíku út í loftið í góðra vina hóp.
"Þráhyggja manna gagnvart skotvopnum er sérstaklega áberandi í ættbálkasamfélaginu í norðvesturhluta Pakistan. Þar eru þau ódýrari en snjallsímar og fæstir karlmenn ferðast langt óvopnaðir."
Vá... fáfræðin, fordómarnir og þröngsýnin í þessum setningum...
Í þriðja heiminum eru skotvopn *stöðutákn.* Kalashnikov er ekkert ókeypis, þó okkur finnist hann ódýr - kostar rússneska herinn þetta ~15-20K, sem er 50-80% af því sem M-16 kostar USMIL.
Við höfum LandCruiser. Þeir Kalashnikov (eða eitthvað annað sem þeir ná í.) Kannski finnst okkur 20.000 kr ekkert mikið, en í Pakistan er það árslaun. Hugsaðu þér að kaupa riffil fyrir slíkan pening. Þú myndir sko vilja sýna öllum gripinn.
Á sama tíma hlítur einn af jafnvel ódýrustu snajllsímum að vera mikið undraverk þarna úti, kostandi 30K og uppúr. Það eru jafnvel færri sem hafa efni á svoleiðis. Væri fyrir pakistanann eins og fyrir okkur að eiga einbýlishús undir Laugarásnum.
Og það er meira vit í því fyrir pakistana í afskekktri sveit að væflast um með AKM en einhvern farsíma, vegna þess að þegar þjóðvegaræningjar óhjákvæmilega birtast er ekki hægt að gera mikið í því með einhverjum síma. Hvað eiga þeir að gera? Hringja í lögguna? Það virkar ekki einu sinni í hinum vestræna heimi.
"Byssumenningin á sér djúpar rætur í landinu..."
Auðvitað. Það er ekki 11 öld lengur. Hver notar sverð?
"Þá hefur hið auðvelda aðgengi eflaust átt sinn þátt í að kynda undir átök innanlands löngu eftir að Sovétmenn heyrðu sögunni til."
Þið hafið snúið orsakasamhenginu við. Vegna fáfræði eða heimsku eða bæði. Þið vitið kannski ekki að það eru *ættbálkar* þarna? Sem var bara haldið friðsælum af konunginum sem var við völd þegar Sovétið mætti. Þegar það var enginn kóngur þá byrjuðu erjurnar um völd milli ættbálkanna.
Þetta hefði gerst þó þeir hefðu ekki haft aðgang að öðru en ydduðum spítum.
"Sjálfvirku vopnin leystu fljótt gamaldags riffla af hólmi við hátíðlegar athafnir en óhætt er að segja að sú hefð að skjóta kúlum út í loft til að fagna hinu og þessu hefur tekið sinn toll."
A: Brot á reglu nr 3. Sem þeim virðis alveg sama um vegna þess að -
B: Þeir eru forlagatrúar.
"Engin opinber tölfræði er til yfir þann fjölda sem hefur látist vegna fagnaðarkúlnahríðar en yfirvöld segja hann líklega nema hundruðum síðustu ár."
*Engin opinber tölfræði er til* en *yfirvöld segja.*
Þriðji heimurinn. Yfirvöld gætu sagt hvað sem er. Í textanum eru reifuð tvö tilvik, og minnst á tvö önnur. Fjögur, sem sagt.
Í gamla daga fagnaði fólk með því að skjóta upp í loft á opnum ökrum, útskýrir Shah. Í dag segir hann viðbúið að þegar hleypt sé af byssu hæfi kúlan einhvern.
Hann ætti að reyna að fá þá til að skjóta upp flugeldum í staðinn. Í USA (talsvert fjölmennara landi) deyja árlega fjórir af vldum flugenda, og ~10.000 slasast.
"Tahir Khan, lögreglustjórinn í Peshawar, hefur hvatt þá sem venjulega hleypa af skotvopnum sínum í fagnaðarskyni til að verja fjármununum sem þeir hefðu ella eytt í skotfæri til góðgerðarmála."
Það er meiri tilfinning og meiri sýning á auðæfum að að skjóta út í loftið.
"Í Pakistan þurfa menn að fá leyfi áður en þeir eignast skotvopn"
Hvað ætli það kosti? Það er venjulega þannig sem yfirvöld halda vopnum frá pöplinum. Það er oftast í lagi að efri millistétt eigi byssur, en venjulega reyna yfirvöld að halda þeim fyrir elítuna eingöngu.
"Nýkjörinn forsætisráðherra, Shahid Abbasi, hefur heitið því að taka á útbreiðslu sjálfvirkra skotvopna."
Í ljósi sögunnar myndi ég hafa illan bifur á þeim náunga.
Pakistaninn þarf NRA. Þeir þurfa ekki MBL til að óska þeim dauða.
Hundruð látist í fagnaðarlátum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2017 | 21:14
Talandi um orðræðu...
Getiði hugsað um tvennt samtímis?
Ekki? Fuck you þá.
Hvað um það, hafandi nú slökkt á heila svons 90% lesenda, vindum okkur í þetta, eisn og sönnum kverúlant sæmir:
"Ísland er langt á eftir norrænum ríkjum þegar kemur að umræðu og lagasetningu um hatursorðræðu."
1: hættið að segja mér að' eitthvert ónefnanlegt ekkert sé að koma að öllu.
2: Af hverju þarf flóknar reglur um umræðuefni landans? Er fólk ófært um að ræða saman...
Nei annars, ekki svara þessu. Ég veit.
"Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttisráðherra, opnaði ráðstefnuna með ávarpi þar sem hann sagði stjórnvöld eiga mjög langt í land að koma lagaumhverfinu í rétt horf og skerpa á skilningnum hér á landi um hatursorðræðu."
1: "Opnaði ráðstefnuna?"
2: "að koma lagaumhverfinu í rétt horf og skerpa á skilningnum hér á landi um hatursorðræðu." Er það ekki brot á stjórnarskrá?
Við getum eiginlega ekki rætt hatursorðræðu án þess að ræða um mannréttindi, segir Sema
Já. Málfrelsið, það er erfitt.
"Sema bendir á að engin ein alþjóðleg skilgreining sé til þegar kemur að hatursorðræðu."
Hér er "þegar kemur að" stytting á "á." Held ég. Erfitt að segja. Án þess að vita hvað er að koma að umtalinu.
En flestum er ljóst að um alvarlegt samfélagsmein sé að ræða sem getur haft hrikalegar afleiðingar fái það að standa óáreitt.
Mér sýnist þeir ætli að reyna að hindra einkennin án þess að svo mikið sem hugsa um ástæðurnar.
Þau afgreiða ástæðurnar alltaf sem fordóma, hvort sem það er rétt eða ekki. Það eru þeirra fordómar.
"Sema Erla, sem á tyrkneskan föður en er fædd og uppalin á Íslandi, telur að tengsl hennar við Tyrkland, málflutningur vegna málefna flóttamanna og sú staðreynd að hún er kona séu á meðal ástæðna þess að hún verði fyrir andlegu ofbeldi sem þessu."
Það, og GIFT.
Fólk. Alltaf eins. Allstaðar.
Hatursorðræða er samfélagsmein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2017 | 18:16
Þeir vita sínu viti hjá Honda
Tvinn-bílar eru mjög flókin tæki, og kosta þess vegna miklu meira. Ofaná það eru þeir þyngri, sem aftur hefur áhrif á aksturseiginleikana.
Sumstaðar eru Tvinn-bílar niðurgreiddir af einhverjum Jónasi úti í bæ sem kannski á ekkert bíl, sem er auðvitað mjög jafnaðarlegt, en á sama tíma ekki sanngjarnt.
Svo Honda eru hér að slá tvær flugur í einu höggi: að framleiða bíl sem er ekki bara með betri aksturseiginleika, heldur er líka félagslega sanngjarn.
Aðeins með bensínvél | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2017 | 14:29
Heimska eða masókismi?
Af hverju vill fólk ekki losna við vinstri-slagsiðuna?
Finnst því frelsið óþægilegt? Er niðurdrepandi að eiga auka-pening? Er maturinn of ódýr og afborganirnar of lágar? Er auðmagnið í of margra höndum?
Maður spyr sig.
Flestir vilja VG í næstu stjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2017 | 23:01
Nagdýr? Það er prótein.
Sama gildir um pöddur.
Allir vilja sitt prótein í formi drykkja eða þessara kexkaka nú til dags.
Dautt nagdýr í salatinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2017 | 19:25
Þetta er í annað skifti...
... sem stjórnin fellur vegna þess að upp kemst um mál þar sem einhver er ekki að gera eitthvað ólöglegt.
Útlit fyrir kosningar 28. október | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |