Kata að auglýsa núverandi stjórnvöld

„Ég túlka yf­ir­lýs­ingu for­sæt­is­ráðherra í New York sem svo að hún marki stefnu­breyt­ingu af hálfu hæst­virtr­ar rík­is­stjórn­ar í þess­um mál­um og ég fagna því að hann hafi þarna lagt nýja línu með form­leg­um stuðningi við yf­ir­lýs­ingu Sam­einuðu þjóðanna.“

Ég persónulega vona að svo sé ekki. 

Þar hafi ráðherr­ann meðal ann­ars lagt áherslu á að styrkja gjald­töku af los­un kol­efn­is.

Sem er mjög neikvætt fyrir skattborgarann.  Og því neikvæðara sem hann hefur lægri laun.  Og frá náttúruverndarsjónarmiði: algjört bull að öllu leiti. 

Vísaði hún þar til þess að stjórn­in hefði lækkað kol­efn­is­gjöld hér á landi síðastliðið vor.

Ágætt að minna okkur á það.  Stjórnin á þakkir skilið fyrir að lækka þær.  Og meiri þakkir hefðu þeir fengið fyrir að leggja þau af, vegna þess að þau gerðu ekkert annað en að hækka hjá okkur lánin og draga úr lífsgæðum.

 "Þá stæði einnig til að lækka los­un­ar­gjald vegna gjald­skyldr­ar los­un­ar á gróður­húsaloft­teg­und­um ef marka mætti frum­varp um ýms­ar for­send­ur frum­varps til fjár­laga."

Það er vissulega tilhlökkunarefni.

Hún Kata lætur stjónina líta svo vel út, núna.  Hvað kemur til?

Og hvers vegna vill hún endilega halda þessum gjöldum, og jafnvel hækka þau?  Er hún og hennar fólk ekki að fárast yfir því að lægsta þrep VSK sé hækkað?  Þetta er lækkun sem vegur að nokkru upp á móti því. 

Ég er ekki viss um að hún hafi hugsað þetta alla leið.

Eða hvað? 


mbl.is Túlkar orð Sigmundar sem stefnubreytingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband