Mér lýst vel á þetta

Það mætti samt alveg verða verðhjöðnun.

Það er ekki eins og það eimi ekki vel eftir af kreppunni ennþá.  Mínus-verðbólga myndi alveg bjarga því.

Svo: gleðjumst fyrir hönd allra sem hafa verðtryggð lán.

Þetta er sjaldgæft og endist ekki lengi.


mbl.is Bregðast þarf við 1% verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sjáum bara til.

Um leið og verðhjöðnunin verður meiri en 2,5% byrjar meðsveiflun (feedback) í víxlverkunaráhrifum (verðtryggðs) peningamagns í umferð og verðbólgu. Þetta er sama meðsveiflunin og bjó til dauðaspíral sem leiddi til stökkbreytingar á höfuðstól verðtryggðra lána 2008 til hækkunar. Munurinn er hinsvegar sá að þegar sá dauðaspírall fer í gang vegna verðhjöðnunar, þá verður stökkbreytingin niður á við, það er að segja til lækkunar.

Það hvort þetta endist lengi fer semsagt eftir því hvort verðhjöðnun nær að detta niður fyrir -2,5% lækkun neysluverðs á ársgrundvelli. Lækkunin sem varð í nóvember var hálft prósent en framreiknað á ársgrundvelli jafngildir það 6,1% verðhjöðnun. Því má segja að spírallinn niður sé að hefjast. Þar sem algengustu vextir verðtryggðra fasteignalána eru á bilinu 4-5% jafngildir 6,1% verðhjöðnun því að nafnávöxtun verður neikvæð. Með öðrum orðum þá ættu lánin að lækka meira en sem nemur mánaðarlegri afborgun!

Þetta eru afar góð tíðindi fyrir skuldara að verðtryggðum lánum.

Svo eru verðlækkanir auðvitað góðar fréttir fyrir neytendur almennt.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.11.2014 kl. 15:12

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það þættu nú tíðindi ef verðbólga héldist undir 1% lengur en nokkra mánuði, hvað þá húin færi eitthvað að þvælast í mínus.

Það væri ljúft fyrir flest okkar.

En... við erum á íslandi, þar sem verðbólga tíðkast, jafnvel þó hún eigi ekki að geta verið til.  Svo ég held að þetta beytist frekar í gamla farið, en að nýir, ævintýralegir hlutir fari að ske.

Ásgrímur Hartmannsson, 26.11.2014 kl. 16:34

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hún er nú þegar í mínus.

Vísitalan lækkaði frá október til nóvember, um hálft prósent.

Það jafngildir 6,1% verðhjöðnun framreiknað til 12 mánaða!

Sjáum hvað setur.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.11.2014 kl. 18:35

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Taktu eftir að það hefur ekki staðið yfir lengi.

Tími skiftir máli.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.11.2014 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband