Fyrir fjölskildur sem búa á Dalvík, setja krakkana í skóla á Akureyri, og verzla á Hvammstanga

Hann er ekki ódýr­asti 7-manna bíll­inn á markaðnum

En er hann þess virði?

"Þess ber að geta að eng­ar til­raun­ir voru gerðar, hvorki með grísl­inga né ung­linga, þannig að hér er aðeins um álykt­un und­ir­ritaðrar að ræða út frá rým­is­greind og til­finn­ingu."

Ég hefði nú bara prófað að setjast inn sjálfur.

Tveggja lítra dísil­vél­in mall­ar nokkuð hátt og minn­ir ei­lítið á drátt­ar­vél sem get­ur verið nota­legt á köfl­um. Eyðslan var 6,8 l á hverja 100 kíló­metra í blönduðum akstri.

2000 módel Honda Civic station með 1600 bensínvél eyðir ~7 í blönduðum akstri.  Fer upp í svona 10 í Eyjum, í 9 í Borg Óttans.  Snatt.

En hver notar bíl "í blönduðum akstri?"  Og svona bíl?  Þetta er skóla rúta, sem verður notuð til matarinnkaupa.  Sem þýðir að vélin verður sjaldan annað en volg, sem aftur þýðir stanslaust álag á heddið, sem veldur því, óhjákvæmilega, að það verpist og vélin verður oþétt, sem þýðir 700.000 króna réikning frá verkstæðinu.

Lágmark.

Og Chevrolet Orlando er ódýrastur í þessum flokki. 3.9 millur.  Vita kraftlaus, auðvitað, en fáanlegur með bensínvél, sem lækkar viðhaldskostnað.


mbl.is Vænn kostur fyrir stórar fjölskyldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband