29.7.2019 | 09:08
En hvað með Klaustursmálið?
Ekkert, það er með það.
Veldu:
gaura sem fussa og sveia ölvaðir eitthvað um vinnuélaga sína.
eða:
gaura sem hækka matvælaverð, ætla að hækka orkuverð, vilja lækka launin þín, draga úr viðskiftum við útlönd og hóta þér með heimsendi vegna batnandi veðurfars.
Það að fylgið hefur ekki hrunið hraðar af XD er eiginlega frekar magnað.
Tapar fylgi til Miðflokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.7.2019 | 09:03
Hér er tilnefning til bjartsýnisverðlaunanna
Eins og vespa með ökumanni einum á ferð sé ekki nógu hægfara.
Reyndi að stinga af á vespu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.7.2019 | 08:59
Byssumaður skotinn af byssumönnum
Það er fyrir löngu or'ið deginum ljósara að kaninn gengur almennt ekki um vopnaður.
Annars þyrftu þeir ekki að bíða eftir byssumönnum á vegum lögreglunnar alltaf.
Líka:
Það er til hvítlaukshátíð.
... já.
Felldu byssumann í Kaliforníu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
En nei.
Botninum þar hefur hvort eð er verið náð. Tími fyrir aðra að föndra með vodka í rúminu.
Svona er best að nota vodka í rúminu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.7.2019 | 19:50
Kenningin um hnattræna hlýnun af mannavöldum...
Er ekki prófanleg og hefur ekki haft forspárgildi. Ekki til þessa.
Það er semsagt ekki hægt að sanna eða afsanna þá kenningu, né er hægt að byggja á henni nein vísindi.
Berum þetta saman við flatjarðarkenninguna. Hún er auð-prófanleg, og ef sönn reyndist hefði víðtækt forspárgildi.
Skemmtilegt til þess að hugsa að merst bull síðari tíma skuli hafa meira tilkall til þess að vera kallað vísindi en kenning sem Íslenska ríkið sver fyrir að sé rétt og beitir fyrir sig sem afsökun fyrir skattheimtu.
Kannski verpur næst settur á einskonar flatjarðar-skattur? Til að hindra að við löbbum út af jörðinni.
Ekki að ég vilji gefa þessum ösnum neinar hugmyndir.
19.7.2019 | 17:38
Munurinn milli flokka er líka heldur flatur
Sem bendir til að það sé of lítill munur milli þeirra.
Nú þarf bara eingver að skera sig hressilega úr, og fá allt óánægjufylgið, sem gætu verið 2ö3 %, og brillera mikið.
Svo er bara ekkert skrítið við að Miðflokkurinn fái meira fylgi, þegar XD er að rembast svona mikið við að veita sínu fylgi til þeirra.
Það að 30% þeirra sem svara vilja helst hard-core fasisma er svo að vanda frekar draugalegt. Ég þekki einn slíkan, og það er nú meira helv. fíflið. Litar mjög dökka mynd af gáfnafari og innræti landans.
Næstu kosningar verða ekkert langt frá þessu, nema eitthvað mikið gerist.
Miðflokkurinn tekur af Sjálfstæðisflokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.7.2019 | 17:23
Er þetta bensínmaður eða eldmaður?
Spyr ég af forvitni, eins og oft áður.
26 farast og tugir slasaðir eftir bruna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.7.2019 | 17:21
Hámarkshraðinn er þá of hægur
Sjá: "þegar hámarkshraðinn var enn 50 km/​klst., var brotahlutfallið 2-4%."
50 var ca passlegt.
"fyrr í mánuðinum reyndust 26% ökumanna keyra yfir löglegum hámarkshraða, sem er 40 km/​klst."
Ný skilti ekki lækkað hraðann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.7.2019 | 09:20
Byggt á hverju?
Mig grunar að frekar verði uppgangur, sem hægi ekki á fyrr en í næstu heimskreppu. Og haldi svo bara áfram, nema bretinn geri sjálfur eitthvað foráttu-heimskulegt.
Búast við efnhagskreppu í lok árs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2019 | 08:48
Kemst ekki í eitthvert ráð, fer í fýlu, stórfrétt.
Það er alveg rétt hjá Helga Hrafni, hún er ekkert dipló. Og ekkert opin fyrir öðrum skoðunum eða umræðum.
Ég hef vídjó: https://vimeo.com/191338097
Ekkert verið að hlusta á mikilvægan vinkil á málinu hérna. Bara skamm! Og þegiðu svo.
Svo neitar Wikileaks að gangast við henni núna.
"Birgitta býr til ósætti frekar en sætti og er algjörlega ófeimin við það og stærir sig af því. Hún krefst þess að aðrir leiti álits hjá sér en leitar ekki álits annarra. Hún grefur undan samherjum sínum ef hún sér af þeim ógn. Hún hótar þeim ef hún fær ekki það sem hún vill. Þetta sagði Helgi Hrafn..."
Hinsvegar hefur Helgi Hrafn komið ágætlega fram til þessa. Hef ég því minni ástæðu til að rengja hann.
Og þarna lýsir hann kengrugluðum sósíópata sem hann þarf að umgangast daglega.
Gaman.
Það er erfitt fyrir hann að draga flokkinn upp með svona þungt lóð áfast honum.
Ég upplifi ákveðið mannorðsmorð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |