30.8.2019 | 21:02
Það eru slæmar fréttir
Í stað þess að fara með hefðbundna ræðu þá sagðist hún í upphafi erindis ætla að taka þá gríðarlega pólitísku áhættu að vera með glærusýningu.
Jafnvel Hitler hefði notað Power-point, hefði hann haft kost á því.
Í upphafi sagðist hún vilja velta fyrir sér spurningunni hvort það skipti máli að starfa innan lýðræðislegrar stjórnmálahreyfingar á tímum þar sem vantraust ríkti á stjórnmálum og stjórnmálaflokkum.
Lýðræði og félagshyggja hafa aldrei átt samleið. Það fyrra kemur hinu seinna á, og svo er það búið, og alræði hefst. (Segja grískir heimspekingar.)
Við búum enn sem komið er við frekar slappt lýðræði...
Þess vegna skiptir máli að við stöndum með okkur sjálfum, þekkjum söguna, vitum hver við erum og hvaðan við komum.
Ég þekki söguna. Aðrir virðast ekki gera það. Í það minnsta ekki meðlimir VG.
Ég leitaði aftur í ályktanir landsfundar frá árinu 1999 og mér fannst magnað að sjá að VG var þá strax farin að álykta um loftslagsmál, sagði Katrín.
VG hafa alla tíð verið hálfvitar. Jafnvel áður en þeir gengu í dómsdagsklúbbinn.
Hún bætti því við að fyrstu lögin um loftslagsmál hefðu verið sett árið 2012 í tíð Svandísar Svavarsdóttur,
Þau mistök hafa aldrei verið leiðrétt.
Fyrir 20 árum ályktaði landsfundur VG einnig að nýir orkugjafar ættu að leysa innflutt eldsneyti af hólmi og nú erum við að innleiða áætlun um orkuskipti, sagði hún.
Á sama tíma er hún að reyna að hækka verð á rafmagni. Vel gert, eða hitt þó.
Frá upphafi höfum við haft algjöra sérstöðu með afstöðu [um herlaust land], sagði Katrín
Það er bara vegna þess að rangt lið tók landið í WW2.
En fyrstu lögin um fiskeldi hefðu ekki verið sett fyrr en árið 2008.
Fiskeldi til mikils vansa.
Þá fannst henni sérstaklega gaman að rifja upp ályktanir frá árinu 2005 um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs og friðun Jökulsár á Fjöllum.
Það vantaði skattborgarann ekki.
Næst rifjaði hún upp landsfund frá árinu 2007 þar sem hreyfingin ályktaði um að fjármagnstekjuskattur yrði hækkaður í 14%.
Það kom mest niður á þeim sem hafa ekki efni á að fela peninginn á Tortola.
Hún spurði viðstadda hvort þeir vissu hvað skattprósentan væri í dag og ekki stóð á svörum úr salnum, 22%, heyrðist í viðstöddum. Hún benti á að fjármagnstekjuskattur hefði verið hækkaður tvisvar frá árinu 2007 og í bæði skiptin hefði VG verið í ríkisstjórn.
Kýldi meðlim VG í andlitið í dag, og fáðu orðu. Handsmíðaða af mér.
Þessi skattur er auðvitað viðkvæmt mál því þarna erum við að tala um skatttekjur af eignum og hagnaði, sagði hún og bætti við:
Skattur af eignum: eignaupptaka.
Og fólk heldur að Lalli Johns sé glæpamaður.
Á landsfundi 2017 var ályktað að hætt yrði við áform um að selja orku til útlanda með sæstreng.
Ef einhver borgar henni persónulega nóg, amþykkir hún það.
Við höfum talað skýrt í þessu máli frá upphafi. Ástæðan er sá þrýstingur sem slíkur sæstrengur myndi setja á miklu fleiri virkjanir á Íslandi og þar voru náttúruverndarsjónarmið höfð að leiðarljósi, sagði Katrín.
En ekki atvinnuleysi og fátækt?
Hún sagði að fólk hefði áhyggjur af því að einstaklingar sem keyptu eignarlönd væru um leið að eignast vatnsréttindi.
... hvað?
"En höldum okkur við staðreyndir og tökum umræðuna alvarlega, bætti Katrín við.
That'll be the day...
Vinstrihreyfingin mun þora, geta og gera | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2019 | 20:40
Umhverfisverndarsamtök eru alltaf til í að borga fyrir vitleysu
Forsvarsmenn sæstrengsverkefnisins Atlantic SuperConnection vonast til þess að skömmu eftir að Bretland gangi úr Evrópusambandinu, [...] geti hafist virkt samtal á milli þeirra og breskra stjórnvalda um formlegan stuðning við verkefnið.
Ef bresk stjórnvöld eru ekki til í að borga fyrir strenginn, er enginn gróði af þessu.
Fulltrúar Atlantic SuperConnection hafa átt fjölda funda með hagsmunaaðilum hér á landi að sögn talsmannsins. Meðal annars með ráðherrum fjögurra ráðuneyta, fulltrúum flestra stjórnmálaflokka og umhverfisverndarsamtökum.
Veit ekki hvort ráðamenn gera sér grein fyrir að planið er að flytja *vinnu* úr landi. Ekki að það virðist skifta það fólk neinu máli svosem...
Hversu háum fjárhæðum hefur þegar verið fjárfest í þessu verkefni? Hversu miklum fjármunum hefur verið safnað til þess að fjármagna það?
Við erum sannfærð um fýsileika verkefnisins og að það verði mjög hagstætt fyrir bæði löndin.
Rrrrrriiiight.
Fyrirbæri sem ber sig ekki öðruvísi en með styrkjum er einhvernvegin fýsilegt fyrir almenning einhversstaðar.
Og svín geta flogið.
Hafa verður í huga að gert er ráð fyrir að Bretland yfirgefi Evrópusambandið innan níu vikna og þá, að öllum líkindum, regluverk sambandsins um orkumál.
Það eru góðar fréttir.
Vonast eftir stuðningi við sæstreng | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2019 | 17:18
Við vitum að þeir samþykkja þetta
enda ólæknandi quislingar, allir með tölu.
Samt, ég hef spurningar:
1: nú vilja þessir apakettir fara út í orkuskifti, þ.e.a.s breyta sem flestu yfir í rafmagn.
Verður grundvöllur fyrir því, þegar orkuverð er fyrirsjáanlega að fara að hækka talsvert á næstu árum? Ekki bara vegna lagabreytinga, heldur líka vegna sæstrengs.
Ég meina, hver er hagurinn við að fá sér rafbíl, og vesenast með einhverjar snúrur, sér bílastæði og 6 klukkutíma hleðzlutíma, þegar það verður dýrara líka?
2: hvað á að gera þegar (ekki ef) álverin flýja land? Þau gera vinnu fyrir hvað var það, 1/5 af landsmönnum? Eða fleiri?
3: Þegar þeir svo samþykkja OP4, verður þá skrúfað frá Gullfossi öðru hvoru, fyrr túristana?
Það verður lítiðmótmælt, held ég þegar það verður vrikjað, enda flestur fluttir annað.
Ég bara spyr.
Alþingi samþykki ákvæði um auðlindir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.8.2019 | 17:45
Ég var að vonast til að sjá hann prófaðan við þessar aðstæður
1: Nýi báturinn er sér-hannaður til þess að sigla í *Landeyjarhöfn* í svona miklum öldugangi.
2: Það hefði verið áhugavert að heyra í fólki eftir siglingu í Þorlákshöfn.
Töpuð tækifæri.
Gamli Herjólfur siglir í Þorlákshöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.8.2019 | 13:20
Gefið að það komi aldrei logn
Bjartir, þeir.
Svo gleyma þeir að reikna með framleiðzlu, uppsetningar 6 viðhaldskostnaði á öllum þessum vindmillum.
Þjóðverjinn er nefnilega búinn að komast að því að þegar það er reiknað inní, þá er vindmilla orkunotandi.
Eru þetta örugglega alvöru vísindamenn?
Mæta orkuþörf heimsins með vindorku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.8.2019 | 16:27
Fyrirsagnir
Enginn veit, með því að lesa fyrirsagnir MBL hvað er í fréttum.
Skoðum fyrirsagnir dagsins:
- Geta ekki leyft sér lúxus
- Ákvörðun Katrínar vekur heimsathygli
- Á reikningnum stóð gamalt fólk
- Fannst látinn á Litla-Hrauni
- Björn Bragi ætlaði að flýja land
- Móðirin segir að barnið sé slys
- Furðar sig á þeim sem gera lítið úr Ásgeiri
- Lítur ekki á sig sem son Pitt
- Neitaði að gefast upp á Subway
- Á 200 km/klst. í hrauninu
1: Hverjir? hvar? hvers vegna? Hvað kemur það mér við?
2: Hvað?
3: Hvað með það?
4: Hver?
5: Hver er það? Af hverju?
6: Það segja þær allar. Next.
7: Hver? Af hverju? Hver er Ásgeir? Hvað kemur það mér við?
8: Hver? Af hverju? Hver er Pitt? Hvað kemur það mér við?
9: Hver? Af hverju? Hvað kemur það mér við?
10: Hver? Af hverju? Hvað kemur það mér við?
Screen-cap, til að ýta aðeins undir trúverðugleika minn. Þetta er ekki fótósjopp.
21.8.2019 | 21:36
Utangarðsmenn voru fyrstu loftslags-vísindamenn Íslands
Hljómsveitin Utangarðsmenn, með þeim Bubba Morthens og félögum, var langt á undan sinni samtíð í loftslags-bölinu vísindunum.
Fyrir meira en 30 árum tilkynntu þeir okkur að 1: við munum öll deyja, 2: börn ykkar munu stikna, og 3: jöklar landsins munu breytast í gufuský.
Það eina sem þeir flöskuðu á var að nota þessa miklu speki til þess að láta fljúga með sig um allar trissur á kostnað almennings í Evrópu og sóla sig aðeins. Svone eins og seinni tíma dómsdagsspámenn loftslagsvísindamenn.
18.8.2019 | 11:13
Seljið þetta bara
Sparið skattgreiðandanum þesar 18.000 + sem gæti farið í mat og hita og rafmagn eða annað þarfara.
Færri og færri horfa/hlusta á þetta á hverju ári, því þær kynslóðir eru smám saman að deyja úr elli.
Þetta er ekki lengur menning. Þetta er risaeðla.
Skynsamlegra að RÚV sé á fjárlögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2019 | 22:13
I don't believe in if anymore...
Þegar?
"Sjórinn hækkar og landið sígur. Það er staðreynd: Kvosin mun sökkva ef það verður sjávarflóð, það er, ef marka má orð Sigríðar Kristjánsdóttur, dósents í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands."
Það er semsagt ekki staðreynd.
"Seinustu 100 árin hefur sjórinn hækkað um 20 sentímetra."
Ef marka má Sigríði. Sem er vafasamt, eins og áður hefur fram komið.
"Það er gert ráð fyrir að hann hækki rúmlega um það sama næstu 100 ár"
Ef marka má Sigríði. ... já.
"... ef við gerum ráð fyrir að þær spár fari fram úr sér eins og þær hafa verið að gera á síðustu tímum, gæti þetta orðið 60-70 sentímetra hækkun að staðaldri, segir Sigríður."
... ef.
"Vegna hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum..."
Vegna Strumpanna.
"...að sögn Sigríðar."
Auðvitað.
Jæja, fólk. Enn einn dómsdagsspámaðurinn með "vísindi."
Spilum handa henni lag:
Þegar Kvosin sekkur í sæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2019 | 15:53
Allt er falt
*Það er af og frá að Danir geti selt Grænland. Þetta segir lektor við Grænlandsháskóla í samtali við Jyllands Posten.
Vegna þess að: "Sjálfstjórnarlögin frá 2009 kveði enn fremur skýrt á um að Grænlendingar séu sínir eigin herrar. Þannig að það er skýrt nei við spurningunni um það hvort það sé Danmerkur að selja Grænland, bætir hann við."
Ljóslega kaupa bandaríkjamenn þá bara Grænland af Grænlendingum. Maður kaupir auðvitað ekki hluti af fólki sem á þá ekki.
Segir Dani ekki geta selt Grænland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |