19.2.2015 | 15:31
Betra vegakerfi
Það batnar hægt en örugglega. Vegirnir breikka og ljósum fækkar.
Umferðin eykst en slysum fækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.2.2015 | 12:07
Takarazuka
Rétt um 100 ára japönsk leikhúshefð...
Er alltaf jafn skopleg á að horfa.
Hallar á karla í Þjóðleikhúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.2.2015 | 23:03
Hér er síða á netinu sem selur banvæn vopn
og sendir þau jafnvel út á land með póstkröfu:
http://www.kokka.is/verslun/elda/hnifar-og-bretti/kjothnifar/vnr/694
Vó! Skúbb! Veit löggan af þessu?
Og hér er önnur:
http://hnifar.is/index.php?id_category=21&controller=category
Úrval af sko alveg deadly shit þarna á ferðinni!
http://www.rumfatalagerinn.is/eldhushnifur-keramik-27-sm-yn1200800
Jafnvel rúmfatalagerinn tekur þátt í þessari víðtæku vopnasölu!
http://www.vesturrost.is/skotveioi/fylgihlutir-en/hnifar-en-2/
Og Vesturröst maður!
Vopn já... svæsið.
Selja vopn og fíkniefni á Facebook | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Og var það ekki einmitt svo að fyrstu fórnarlömb hans voru einhverjar óvopnaðar löggur?
Eða hvað?
Betur vopnaður en lögregla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.2.2015 | 17:09
Segðu "hæ" við Salman Rushdie
Hann er líka í felum fyrir morðóðum útsendurum risastórs sértrúarsöfnuðs.
Það er einhver Bob Moran fílingur í þessu.
Lars Vilks farinn í felur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.2.2015 | 19:55
Skoðum þetta:
Maðurinn sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á tveimur skotárásum í Kaupmannahöfn í gær var 22 ára og fæddur og uppalinn í Danmörku. Maðurinn hét Omar Abdel Hamid El-Hussein, en eins og komið hefur fram var hann skotinn til bana af lögreglu eftir árásirnar í gær.
Oohh... Islam. Aftur.
Lögregla þekkti til mannsins vegna ofbeldishneigðar hans og tengingu hans við glæpagengi samkvæmt frétt TV2 í Danmörku.
Hvaða glæpagengi? Segið nú. Mér sýnist danska lögreglan þurfi að skoða þessi glæpagengi ansi grannt núna, hneppa meðlimi þeirra í varðhald meina ég þá, og yfirheyra þá vandlega.
Samkvæmt frétt Ekstra-Bladet losnaði maðurinn úr fangelsi aðeins tveimur vikum fyrir árásina, en hann hafði setið inni fyrir líkamsárás.
Aha. Hve lengi sitja menn inni fyrir líkamsárásir þarna í Danmörku núna?
Bara af forvitni.
Öryggislögregla landsins þekkti til mannsins sem er talinn hafa verið einn á ferð.
Það vekur vissulega grunsemdir. Var þessi kannski í Jemen líka?
Þessi var hvorki hvítþveginn engill né heldur kom nokkuð af því sem hann gerði á óvart. Öryggislögreglan var að horfa á hann sérstaklega.
Árásarmaðurinn 22 ára Dani | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.2.2015 | 16:29
Ég hefði notað byssu
Kalt blóð dregur ekki nógu langt.
Skotinn með köldu blóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.2.2015 | 20:11
Alltaf jafn gaman að benda á þetta:
Danir eru með leyniþjónustu.
Þið vitið: forvirkar rannsóknarheimildir?
Frakkar voru með þær.
Hindrar ekkert.
Árásarmannanna enn leitað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2015 | 19:00
Er hræðsla að keppa við Islam?
Í viðtali við The Independent segir Abed Ayoub að umfjöllunin, eða skortur á henni, tengist þeirri hræðslu gegn íslam, sem nýjasta kvikmynd Clint Eastwood, American Sniper byggir á að hans mati.
Svona eins og KR gegn Val?
Málfræði... ekki skilyrði fyrir starfi á MBL.
American Sniper vendipunktur í hræðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2015 | 16:56
Hver vill það ekki?
Við erum orðin leið á að fá lítið fyrir mikið. Sem er landlægt vandamál.
Í könnuninni kemur fram að stór hluti Íslendinga telur skattbyrði sína of háa en telur á sama tíma ónauðsynlegt að minnka opinber umsvif.
Grunar mig að þessi stóri hluti íslendinga stígi ekki í vitið.
Hreggviður sagði ákvörðun um umfang þjónustu hins opinbera vera jafnvægislist sem snúist um forgangsröðun og skilvirka nýtingu fjármuna.
Skilvirkni er ekki vinsæl.
Aðhaldsaðgerðir hins opinbera á síðustu árum hafi að mestu leyti verið í formi skattahækkana og samdrætti í fjárfestingu, sem seint yrði talin varanleg hagræðing.
Hinn kosturinn er að draga úr umsvifum ríkisstofnana, eða með því að leggja þær niður eða hætta að styrkja ónauðsynlega hluti - sem mætir alltaf talsverðum mótmælum.
Munum bara eftir því þegar þeir ætluðu í skjóli nætur að fækka aðeins í fiskistofu.
Hreggviður [...] vakti [...] athygli á því að einkageirinn hafi skapað sívaxandi verðmæti á hverja vinnueinungu á undanförnum árum. Opinberi geirinn hafi hins vegar setið eftir.
Hefur opinberi geirinn nokkuð framleitt annað en vandræði?
Jú... númeraplötur. En eru það alvöru verðmæti? Ekki flytjum við þær út.
Þannig hafi stöðugildum hjá hinu opinbera fjölgað um 30% á sama tíma og stöðugildum í einkageiranum hafi fækkað um 7% á sama tímabili.
Hafa ber í huga hér að opinberi geirinn framleiðir ekki. Hann er afæta.
Sagði Hreggviður að þessi þróun væri ósjálfbær.
Nákvæmlega.
Í máli Hreggviðs kom fram að með aðgerðum sem byggja á skynsamlegum markmiðum mætti komast hjá verulegri lífskjaraskerðingu Íslendinga á komandi árum.
Líkurnar á þ´vi að það gerist nálgast 0.
Sagði hann brýnt og tímabært að innleiða kerfisbreytingar sem geri okkur kleift að fá meira fyrir minna.
Kerfið vill ekki breytast þannig. Margt fólk vill ekki að kerfið breytist þannig, það á svo margt undir því.
En til þess að það sé mögulegt þurfi ný viðhorf.
Viðhorfum tekur kynsklóðir að breyta.
Íslendingar vilja mikið fyrir lítið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |