19.8.2015 | 20:05
Hver þarf ekki svona?
Bara enn einn partur í cyborga-herinn.
Segjast hafa ræktað heila | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2015 | 20:04
Já...
Þessi hlustar sennilega mikið á Trans tónlist, í transistor-útvarpinu í Trans Aminum sínum.
Þessi fer ekki í ferðalög, heldur í "trans-missions" með Trans Atlantic flugfélaginu.
Sefur ekki, heldur fellur í trans.
Meira? Nah...
Fyrsta transmanneskjan í Hvíta húsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2015 | 19:57
Um að gera að setja webcam á þetta
Þetta yrði æsispennandi sjónvarpsefni... eða þannig.
Gæti dottið á morgun, eða eftir 3 mánuði. Enginn veit.
Bjargið mun brotna í brimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2015 | 22:37
Svona verða úthverfi til
Þar sem enginn hefur efni á að búa í miðbænum er nauðsyn að byggja þar sem lóðaverð er lægra.
Ég sé einnig að þeir hafa fundið eitt af fáum einbýlishúsum í Detroit sem er ekki búið að brenna til grunna. Vel af sér vikið, það.
Svipað húsnæðisverð þar og hér í eyjum þá, en hér stendur allt og fellur með hvernig fiskast.
Öllum er sama meðan ekkert veiðist, en um leið og eitthvað fiskast kemur öfundin upp.
Mig grunar að á flestum þessum stöðum séu menn ekki að flytja inn nema skifta á húsnæði sem þeir eiga fyrir.
Annað sem vert er að hafa í huga er, að í útlöndum eru vextir (alltaf óverðtryggðir) frá 0.2% (Japan) uppí *allt að* 3%.
Það er öllu auðveldara fyrir meðal-manninn að punga út fyrir 3 milljón króna kústaskáp á þannig kjörum.
En... þetta reynist samt of dýrt. Sem veldur því að miðborg London er tóm. Þar búa ansi fáir. Og allt einhverjir sem hafa fengið húsnæðið í arf, eða eru *ógeðslega ríkir.*
Hvernig hús fæst fyrir 40 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2015 | 17:43
Fjórhjóladrifinn jeppi?
Það er svona eins og að segja "blautt vatn."
Ef það er ekki drif á öllum þá er það ekki jeppi.
Fjórhjóladrifinn sportjeppi frá Renault frumsýndur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2015 | 17:13
Notuðu þeir leisera?
Hvað var svona óvenjulegt við þetta? Hljómar eins og venjulegur dagur í Sao Paulo.
Athugið: eitt af hverjum 5 morðum er framið í Brazilíu.
Óvenjulegar skotárásir í Sao Paulo | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.8.2015 | 18:49
Þetta var fyrirsjáanlegt
Réttið upp hönd: hver sá þetta ekki fyrir?
Rússar banna innflutning frá Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.8.2015 | 18:24
Bull, allt saman
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata, segir eðlilegt að íslensk stjórnvöld hafi tekið þátt í viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins gegn Rússum.
Á hvaða forsendu?
Hún kallar hins vegar eftir nákvæmari útskýringum á því hvaða forsendur eigi að liggja fyrir til þess að þvingununum verði aflétt.
Auðvelt:
A: Við töpum á þessu, rússar ekki.
B: Þvinganirnar eru vegna þess að einhverjir pólitíkusar í evrópu vilja styðja einhverja nazista í Úkraínu.
C: Þetta er bara táknrænt fyrir Alþingi, mjög raunverulegt fyrir alla aðra.
Mér finnst það ekki nógu skýrt.
Það er vegna þess að þú reiktir of mikið lyfjagras í æsku, held ég.
Þetta voru auðvitað ákveðin viðbrögð við innlimun Krímskagans og síðan áframhaldandi ófriði á landamærum Úkraínu og Rússlands.
Sem koma okkur ekki við.
Hver er krafan?
Krafa hverra?
Hún segist einnig skilja þá gagnrýni sem komið hefur fram um skort á samráði stjórnvalda við sjávarútvegsfyrirtæki ...
Er það? Er þetta ekki bara standard frasi hjá henni?
Mér finnst mikilvægt þegar við grípum til svona alþjóðaaðgerða, alveg óháð því hvaða aðgerðir það eru, að haft sé samráð við stóra hagsmunaaðila, bara til þess að upplýsa þá.
Já, einmitt: "við höfum áhveðið að gera hluti sem munu koma sér afar illa fyrir ykkur. Nú vitið það. Bæ."
Ég er ekki þeirrar skoðunar að hagsmunaaðilar eigi að skipta sér af utanríkismálastefnu landsins, en mér finnst mjög mikilvægt að skoða öll áhrifin.
Hvar er lýðræðishyggjan núna?
Hún segir ekki koma til greina að Ísland hætti stuðningi sínum við refsiaðgerðirnar.
Af hverju ekki?
Birgitta... þetta sem er milli eyrnanna á þér... er það kannski bara ballest?
Segir gagnrýnina eiga rétt á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.8.2015 | 12:45
Ef þessi sænska leið er svona frábær, af hverju ekki nota hana meira?
Ég meina þá til dæmis í hinni endalausu baráttu við eiturlyfjaneytendur?
Það væri þá til dæmis ofsalega sniðugt að gera eiturlyfjasölu löglega, en það að kaupa eiturlyf ólöglegt.
**
En að allri alvöru slepptri:
"Fríða (formaður Kvenréttindafélags Íslands) segist ekki átta sig á því hvernig Amnesty hyggist útfæra vændismarkaðinn, eða hvernig samtökin sjái fyrir sér að hann verði."
Vill einhver segja Fríðu formanni Kvenréttindafélags Íslands að Amnesty hafi engin ítök í undirheimum, og hafi þess vegna engin völd til þess að útfæra vændismarkaðinn.
Vændi nær þrælahaldi en starfsgrein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.8.2015 | 19:39
Skemmtilegri hugmynd skaut niður:
Hvað ef vopnaða verðinum dettur allt í einu í hug að fremja fjöldamorð?
Verðir eru líka mennskir.
Eða það hef ég heyrt. Eða hvort ég sá það í bíómynd...
Vopnaðir verðir gæta ungmennanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |