Flestir íslendingar eru fasistar

Strangt til tekið, grunar mig.

En:

„Öfl for­dóma, þjóðern­is­hyggju og hat­urs teygja sig sí­fellt nær okk­ar eig­in sam­fé­lagi.

Það er sam-mannlegt. 

Og í vor var sak­leysi ís­lenskra stjórn­mála spillt.

Í vor?  Hvar hefur þessi gaur verið alla sína æfi?  Eða var honum hleypt út úr útúngunarklefanum í fyrra?  Eða í gær?

Mín skoðun er sú að með kæru­leysi, tæki­færis­mennsku og lýðskrumi hafa ís­lensk­ir stjórn­mála­menn fært okk­ur að forg­arði fas­ism­ans,“

Hans skoðun.  Staðreyndin er sú að þetta fer vel í fólkið. 

Stefán Rafn Sig­ur­björns­son, formaður Ungra jafnaðarmanna

Ah... hehehehe... 

Svo fer hann eithvað að nöldra út af framsókn.

Hann tel­ur verk nú­ver­andi rík­is­stjórn­ar hafa verið verri en nokk­urn óraði.

Feh.  Tek hana fram yfir stjórn Jóhönnu & Steingríms any day. 

„Alþing­is­kosn­ing­arn­ar voru okk­ur bit­ur reynsla þar sem stjórn fé­lags­hyggju var lát­in víkja fyr­ir íhalds­stjórn

Reyndar vék félagshyggjan bara fyrir aðeisn frjálslyndari félagshyggju, en... whatever.  Þeir lifa í sínum draumaheimi,og ég get ekki breytt því. 

Það kom okk­ur ekki á óvart að vinstri­stjórn­in skuli hafa vikið eft­ir erfið fjög­ur ár en það sem tók við var í raun verra en okk­ur óraði,“ sagði Stefán. 

Hvernig þá?  Hann ætti að vera ánægður, núverandi stjórn er að leggja af matarskatt sem fyrri stjórn lagði á, lækka kolefnisgjaldið, sem fyrri stjórn lagði á, og seinst þegar ég tékkaði ætluðu þeir að lækka tekjuskattinn eitthvað smá.

Allt hlutir sem koma alþýðunni vel.

Á móti ætti hann kannski að vera sáttur við að núverandi stjórn er vissulega mjög stjórnsöm og fasísk, alveg eins og stjórnin á undan.  Bara minna.

Alveg...

Íslensk stjórnmálaumræða: fasistar að furða sig á því af hverju fasistar hegða sér eins og fasistar, og eru fúlir út af því að þeir eru það sem þeir eru. 


mbl.is „Hafa fært okkur að forgarði fasismans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband