Þetta er tortyggilegt

"Kristján Guy Burgess, fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, seg­ir að verið sé að reyna að varpa upp sem mest­um reyk með því að gera eign­ar­hald á huldu­fé­lag­inu sem á hús­næðið að Hall­veig­ar­stíg 1 sem Sam­fylk­ing­in leig­ir tor­tryggi­legt."

Hvað er ekki tortyggilegt við það?

1: það er huldufélag.

2: formaður Samfó segist ekkert vita hver á það.

3: Það er skráð í útlöndum.

4: það er ekki til á skrá hjá ríkisskatsjóra.

(Q: "Fram kom í um­fjöll­un um málið í Morg­un­blaðinu á föstu­dag að Fjal­ar og Fjöln­ir eru skráð með er­lend­ar kenni­töl­ur og heim­ili „í öðrum lönd­um“. Þá feng­ust þær upp­lýs­ing­ar hjá Rík­is­skatt­stjóra að fé­lög­in fynd­ust ekki í skrám embætt­is­ins.)

Var ekki mikið moldviðri um daginn vegna þess að einhver embættismaður átti einu sinni eignir í skattaskjóli?  Eignir sem voru þó gefnar upp?

Þetta er miklu grunsamlegra,

"Spurður í Viku­lok­un­um á Rás 2 um eig­end­ur fé­lags­ins sem á hús­næðið sem Sam­fylk­ing­in leig­ir seg­ist Kristján Guy ekki þekkja það ná­kvæm­lega."

Hann ekki heldur? 

"Sagði Friðjón Óttar Ingvars­son, hrl. og stjórn­ar­mann í Alþýðuhúsi Reykja­vík­ur, vera fyrr­ver­andi miðstjórn­ar­mann í Alþýðuflokkn­um og gaf hann því lítið fyr­ir skýr­ing­ar Kristjáns Guy um að fé­lagið væri ótengt Sam­fylk­ing­unni líkt og Kristján hélt fram."

Hmm...

Málið verður grunsamlegra með hverri málsgrein.

"Kristján Guy sagði þá fé­lagið óháð flokkn­um í sam­bandi um lög um stjórn­mála­sam­tök." (sic)

"Þetta er löglegt" útskýringin dugði ekki fyrir Sigmund.  (Reyndar er mig farið að gruna að hér séu ólöglegir hlutir á seyði.  En það eru náttúrlega bara grunsemdir, byggðar á hve leynilegt þetta allt er.)

"Hann seg­ist hafa orð eig­enda húss­ins að fé­lög­in séu ekki skráð á Tortola. „Ég hef orð þess­ara manna og hef ekki ástæðu til að rengja þau.“"

En á Panama?  Delaware?  Lúxemborg? Sviss? Cayman eyjum? London? Írlandi? Bermúda? Singapore?  Eða Belgíu?

Allt vel þekkt skattaskjól.

Flettið því upp.


mbl.is Segir félagið tengt Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er ekki aðeins tortryggilegt, heldur beinlínis ólöglegt.

Brýtur gegn skráningarskyldu samkvæmt lögum um fyrirtækjaskrá.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.4.2016 kl. 14:53

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þar höfum við það.  Mig grunaði að þetta væri eitthvað rangt.

Samt, það verður ekkert mál úr þessu.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.4.2016 kl. 16:41

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

"Hann seg­ist hafa orð eig­enda húss­ins að fé­lög­in séu ekki skráð á Tortola. „Ég hef orð þess­ara manna og hef ekki ástæðu til að rengja þau.“"

Hverjir eru þessir menn sem Kristján Guy talar um??? hvað heita þeir??? Eru þeir kannski einhverjir huldumenn???

Tómas Ibsen Halldórsson, 17.4.2016 kl. 00:35

4 Smámynd: Þ. J.

 Eh.. Hann veit ekki hver á húsið en "Hann segist hafa orð eiganda hússins að félögin séu ekki skráð á Tortola"  Hvernig í fjandanum getur maður haft orð einhvers sem maður veit ekki um, fyrir enhverju???

Þ. J., 17.4.2016 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband