17.9.2014 | 19:37
Helvítis kjaftæði
Það eru miklu fleir en 3 kostir.
Þeir gætu til dæmis búið til skoska pundið/dollarinn/líruna/markið/krónuna.
Eða þeir gætu tekið upp US dollar. Eða gjaldmiðilinn sem BRICS eru með sín á milli. Eða einn af fjölmörgum gjaldmiðlum heimsins.
Ég mæli amt með skoska gjaldmiðlinum. Hann verður háður þeirra eigin sveiflum. Það er best.
Þrír kostir og allir slæmir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2014 | 19:34
Hernaðarráðgjafa?
Stuðningur við Íslamska ríkið eykst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.9.2014 | 19:15
Ein mistök leiðrétt með öðrum
"Leggur Johnson til að eigendum dísilbíla verði greidd 2.000 pund, um 390 þúsund krónur, fyrir að farga bílunum og leiðrétta þannig hrapalleg mistök í stefnu stjórnvalda."
Af hverju mega menn ekki keyra þessa bíla út? Það væri:
1: Umhverfisvænna.
2: ódýrara.
3: miklu minna vesen að öllu leiti.
Borgað verði fyrir förgun dísilbíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2014 | 19:00
Ekki alveg...
Hann komst upp með morð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2014 | 18:55
Þetta var fyrir eftirlaunin
Það var verið að koma sem flestum á ráðherraeftirlaun, fólkið sat bara nógu lengi til þess að ávinna sér þann rétt, og svo fór það.
Hvað annað haldiði að þetta hafi snúist um?
Endalausar hræringar fyrri ríkisstjórnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2014 | 19:52
Þeir ná aldrei þeim lægðum sem okkar stjórn kom okkur í
Ég giska reyndar á (án þess að vita betur) að þeirra leftistar séu aðeins til hægri við okkar.
Og hugsanlega með greindarvísitölu yfir hálfvitamörkum.
Vona ég líka, fyrir hönd svía.
Vinstriflokkarnir með 44,8% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2014 | 18:27
Já, setjið endilega á sérstakan matarskatt
Gæti borgað nýjan Landspítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2014 | 21:33
Reiknum nú
Samkvæmt mínum reikningum (ég á strimlana), eru mánaðarleg innkaup að jafnaði 25.000 kr, sem gerir 300.000 á ári.
Sem þýðir, að að öllu öðru óbreyttu (sem er strangt til tekið ekki að fara að gerast,) hækka matarútgjöldin hjá mér um ~13-14.000.
Það er á ári.
Ég kemst ekki í Bónus. Ég lifi ekki á hafragraut eingöngu. Ég er ekki um það bil að fara að svelta.
Það er minna en ég þarf að borga fyrir Ríkisútvarpið. Og öllum finnsta bara fínt að rukka alla, hátt eða lágt launaða, jafnt fyrir það.
Matarútgjöldin aukast um 42 þúsund á ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2014 | 06:13
Þetta gos mun vissulega laumast að okkur í nótt, með hníf á lofti
Hvar kemur það upp næst? Hver veit?
Verið hrædd! Verið VIRKILEGA hrædd!
Hið uggvænlega eldgos laumast um heiðarnar í vígahug.
Það gæti verið undir rúminu hjá þér. Eða niðri í kjallara, hræðandi köngulærnar.
Slík er illska þess.
***
Íslenskir fjölmiðlar vildu óska þess að þeir væru jafn marktækir og FOX.
Hættulegasti staður á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2014 | 06:09
Var nakin undir fötunum
Besta. Fyrirsögn. Í. Heimi. Frá. Upphafi.
Var allsnakin undir kjólnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |