24.9.2014 | 16:47
Kata að auglýsa núverandi stjórnvöld
Ég túlka yfirlýsingu forsætisráðherra í New York sem svo að hún marki stefnubreytingu af hálfu hæstvirtrar ríkisstjórnar í þessum málum og ég fagna því að hann hafi þarna lagt nýja línu með formlegum stuðningi við yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
Ég persónulega vona að svo sé ekki.
Þar hafi ráðherrann meðal annars lagt áherslu á að styrkja gjaldtöku af losun kolefnis.
Sem er mjög neikvætt fyrir skattborgarann. Og því neikvæðara sem hann hefur lægri laun. Og frá náttúruverndarsjónarmiði: algjört bull að öllu leiti.
Vísaði hún þar til þess að stjórnin hefði lækkað kolefnisgjöld hér á landi síðastliðið vor.
Ágætt að minna okkur á það. Stjórnin á þakkir skilið fyrir að lækka þær. Og meiri þakkir hefðu þeir fengið fyrir að leggja þau af, vegna þess að þau gerðu ekkert annað en að hækka hjá okkur lánin og draga úr lífsgæðum.
"Þá stæði einnig til að lækka losunargjald vegna gjaldskyldrar losunar á gróðurhúsalofttegundum ef marka mætti frumvarp um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga."
Það er vissulega tilhlökkunarefni.
Hún Kata lætur stjónina líta svo vel út, núna. Hvað kemur til?
Og hvers vegna vill hún endilega halda þessum gjöldum, og jafnvel hækka þau? Er hún og hennar fólk ekki að fárast yfir því að lægsta þrep VSK sé hækkað? Þetta er lækkun sem vegur að nokkru upp á móti því.
Ég er ekki viss um að hún hafi hugsað þetta alla leið.
Eða hvað?
Túlkar orð Sigmundar sem stefnubreytingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2014 | 18:18
Ég er ekki viss um að þetta sé *réttur* listi
Hvar er til dæmis Toyota Prius? Það er alveg skelfilega lélegur bíll. Bara kassi sem dregst áfram, vita kraftlaus, aksturseiginleikar kókó-pöffs kassa, hávær...
En hvað um það:
Rover CityRover
Auðvitað. Þetta er Rover. Allir vita hverjir framleiða þá.
Suzuki X-90
Ég er ekki viss um að þessi sé svo slæmur. Hann hlýtur til dæmis hað hafa betri aksturseiginleika en Vitara, sem hann er einmitt byggður á, og bilerí er allt í lágmarki.
Renault Safrane
Hafandi ekkert nema slæma reynzlu af Renault...
FSO Polonez
OK... langar samt dáldið að prófa að keyra einn. Svona til þess að hafa prófað það. Þetta, og Lödu.
Lexus SC 430
Ja, hann bilar a.m.k ekki. Fyrir menn sem halda að þetta sé einhver breskur sportbíll, þá verða vonbrigði. Þetta er nefnilega þver-öfugt: ekkert varið í að aka bílinn, þannig, en maður þarf á móti ekki að hafa neinar áhyggjur af að komast á leiðarenda.
Sem þýðir að þetta er ekkert það vondur bíll.
Citroen C3 Pluriel
Franskt. Maður þarf alltaf að eiga tvo franska bíla. Af sömu ástæðu og maður þarf alltaf að eiga tvo breska bíla.
Chrysler PT Cruiser Convertible
Af því að? Við vitum öll að olían lekur úr þeim jafnóðum og hún er sett á. Það er vegna þess að þetta er Chrysler. En það verður að vera meira.
Hyundai Pony
Það er talsverður munur á árgerðum. 1992-6 týpurnar voru bara 1988 Mitsubishi Colt. Að ölli leiti.
Mitsubishi Mirage
Pass.
Lada Riva
Veit ekki. Veit þeir bila eins og 1978 módel FIAT, en það er vegna þess að þetta eru 1978 módel FIAT. En á móti lagar maður þær bara með smá teipi.
Austin Allegro
Þessir eru fyrir löngu orðnir að goðsögn. Ein af ástæðum þess að bretar aka flestir um á BMW núorðið. Það er miklu ódýrara.
Kia Pride
Hvers vegna? Er nóg að bíllinn sé svolítið halló til að hann lendi á þessum lista?
Morris Marina
... pass. En hey, breskur bíll.
Alfa Romeo Arna
Ah... Japönsk hönnun Ítölsk gæði. Hahaha!
Nissan Micra C+C
Aftur: Er nóg að bíllinn sé svolítið halló til að hann lendi á þessum lista?
G-Wiz
... já.
Austin Ambassador
Breskt. Og hefur útlitið ekki beint með sér heldur.
Nissan Cube
Það er útlitið, ekki satt?
Ssangyong Rodius
Það er ástæða fyrir því að SsangYong seljast ekki á 300.000.
Chrysler Ypsilon
Þetta er Lancia.
En þetta er bull. Ég veit alveg hvað var versti bíll í heimi þar til þeir hættu að framleiða þá bara fyrir skömmu.
Hindustan Ambassador.
Ferlega illa smíðaðir, úr voðalegum efnum, með glataðri vél. Fyrirbærið var talsvert verra tæki en 1957 Morris heygrindurnar sem þeir voru smíðaðir eftir. Miklu. Þökk sé landlægri spillingu á Indlandi - sem er talsvert meiri og verri en hér á landi.
Pælið í því.
Og þeir kostuðu fjandans 6 milljónir íslenskar. Á Indlandi.
Funk dat.
Verstu bílar sögunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2014 | 17:54
Allir pólitíkusar hata fátækt fólk
Sérstaklega það sem nennir að vinna.
Ég man þegar þeir komu með sykurskatt. Hvað var það annað en bein árás á þá sem lægri hafa tekjurnar?
Svo kolefnisgjaldið. Það fór ekki vel með pyngju þeirra lægst launuðu.
Menn þurfa ekki að borða sykraðar vörur eða aka bíl til þess að þetta hafi áhrif, það eina sem menn þurfa að gera til þess að þessi gjöld bíti er að eiga eða leigja íbúð.
Matarskattur andúð á fátæku fólki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2014 | 17:49
Þetta er bara einn af þessum lötu...
Þið þekkið þessa týpur - liðið sem fer út að keyra með hundinn. Nennir ekki að ganga mað hann.
Þessi hefur gert það, fest hundinn við bílinn svo hann týndist ekki, og farið svo "út að labba með hundinn," eða þannig, og svo bara hreinlega gleymt honum.
Úps.
Það er mín kenning.
Dró hundinn á eftir bílnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2014 | 18:14
Berum við ábyrgð á forboðna eldfjallinu?
19.9.2014 | 19:36
... ja hérna.
Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er ekki viðunandi. Fólk er undir fátækramörkum þar,
Hvort segir maður fátækramörk eða fátæktarmörk? Ég held það síðara.
...skýrsluhöfundur nýrrar skýrslu...
Sic erat scriptum.
"Segir mannréttindalög á fólki brotin"
Mannréttindalög á fólki?
"Vandamálið hér á Íslandi er að sveitafélögin hafa sterkan sjálfsákvörðunarrétt"
Er það nauðsynlega vandamál?
"Við höfum mannréttindalög og ýmislegt annað sem verið er að brjóta á þessu fólki"
Þessu fólki? Starfsmenn sveitarfélaga og/eða ráðuneyta? Eða einhverjum allt öðrum?
" Þess vegna mælum við með því að lágmarks framfærslan sé endurskoðuð í hverju landi fyrir sig og hún geri það að verkum að fólk þurfi ekki að lifa í fátækt."
Fólk þarf ekkert að lifa í algerri fátækt. Fyrir heilbrigða menn er létt verk að fá sér vinnu. Til að vera á örorkubótum þarf maður að vera við góða heilsu til þess að starfa við kerfið - eins og það er kallað af kaldhæðnari mönnum.
Annars er þessi texti hið mesta torf.
Fólk er undir fátæktarmörkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2014 | 16:14
Það er rétt
Allar tilraunir til þess að þvinga fólk til þess að hjóla, alveg óháð því hve hentugt það er, *það* er mál vinstri manna.
Svo, þegar komið er nógu langt til vinstri banna þeir hjólreiðar líka.
Hjólreiðar ekki mál vinstri manna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2014 | 23:38
Áhugavert mál fyrir erfðarétt.
Gefum okkur sem svo að einhver sem er afkomandi einbirna langt aftur í aldir deyji og skilji eftir sig svona lán.
Fer þá lánveitandinn í Íslendingabók og athugar hvar blóðlínan kvíslaðist seinast, og vinnur sig upp?
Hver eða hverjir verða þá svo heppnir að fá skyndilega reikning eftir einhvern sem þau eru skild í - hvað skal segja, 5 lið?
Hvernig yrði þér við?
Ísland, þar sem skuldir endast að eilífu.
Þurfa skyndilega að greiða lánið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2014 | 23:34
Á pappír er eitt...
"Verkefni námskeiðisins gekk út á að vera stjórnandi í sviðsettri friðargæslusveit sem er á vettvangi, segir Jónas"
Hvað fær maður mörg stig fyrir að líta undan á meðan ofbeldismenn myrða alla í einhverju smáþorpinu?
Þið vitið, eins og er gert...
"Til að komast inn í þetta nám þá þarftu að hafa verið partur af friðargæsluliði eða tekið þátt í sambærilegum verkefnum. Þú getur ekki stjórnað ef þú hefur ekki gengið upp stigann,"
Allt öðruvísi en starf hjá ríkinu, sem sagt.
"Í heila viku var keyrð skrifborðsæfing."
Hljómar samt alveg eins og starf hjá ríkinu.
"það þarf að vera prógramm sem fylgir því eftir hvað eigi að gera við fólkið að stríði loknu"
Fela líkin 101.
"Við þurftum að fá þrjár fylkingar til að leggja niður vopn, við þurftum síðan að gera vopnin upptæk. "
Og svo búa til sápu og lampaskermi úr öllum. I can dig it.
"og það þarf að byggja upp her í landinu til að halda jafnvægi."
Hvernig tryggja þeir að sá her geri ekki hluti sem þeir vilja ekki? Eins og ISIS?
"Þetta gengur allt út á að reyna að gera fólið að virkum þjóðfélagsþegnum"
Besta ritvilla til þessa.
"Þá þurftum við að vera búnir að afvopna og róa ástandið,"
Svo það geti blossað upp aftur 20 árum seinna. Af sömu ástæðum og þær hófust í upphafi.
Allt þetta minnir mig af einhverjum orsökum á þetta:
s."
Stillti til friðar við herakademíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2014 | 19:55
Þetta er gert í þágu dekkjaframleiðenda
Hertar kröfur um mynsturdýpt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |