13.12.2014 | 15:24
Bíðið nú aðeins...
Magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi árið 2011 var 15% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna, sem eru 28.
Heildarfjöldi landa er 28.
Ísland var í 12. sæti yfir verga landsframleiðslu á mann sama ár í samanburði 37 Evrópuríkja, þ.e. Evrópusambandsríkjanna auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu.
Heldarfjöldi á þeim lista er 37, svo það er ekki hægt að bera það saman án þess að fá stöplarit.
Og við fáum allt aðrar upplýsingar til að vinna úr. Hve mörg prósent, ef nokkur, erum við yfir eða undir meðaltali á þeim lista?
Þá var magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi 13% yfir meðaltali ESB-ríkja
Þær upplýsingar tilheyra fyrri listanum.
og var Ísland 10.-11. í röð landanna 37 ásamt Finnlandi.
Það segir okkur, að því fleiri fátæk lönd eru á listanum, því hærra erum við á honum.
Bara með því að horfa á þetta eins og þetta er uppgefið, sé ég ekki betur en við séum ekkert nauðsynlega að standa okkur svo vel, heldur er hellingur af bláfátækum löndum að draga meðaltalið niður.
Framleiðslan 15% yfir meðaltali ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.12.2014 | 17:54
2.000 kall? Prófaðu 18.000 kall.
Hvar hefur hann verið? Á hvaða plánetu? Af hverju veit hann ekki hvað við borgum?
Vilja fá að borga tvö þúsund kallinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2014 | 19:24
Hvernig brýtur maður hest?
Ég velti því fyrir mér.
Helst dettur mér í hug að best væri að heilfrysta kvikyndið í fljótandi köfnunarefni, og lemja það svo með sleggju, eða bara láta það detta í gólfið úr sæmilegri hæð.
Þá mun hesturinn vissulega brotna í marga mola.
Sögð hafa brotið hest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2014 | 19:22
Þetta er sandur
11.12.2014 | 17:28
Mér líst vel á þennan kött
Grænt fer honum vel.
Hann væri góður með bláa kettinum í kattamatarauglýsingunni þarna.
Ekki veit ég af hverju kettir mega vera bláir í friði, en ekki grænir.
Allt vitlaust útaf græna kettinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2014 | 04:51
Langar ekki í svona
Þeir eru ekki margir jepparnir sem gera jafnríkt tilkall til nafnbótarinnar Konungur jeppanna og Toyota Land Cruiser 200.
Willys CJ. Allt annað er bara eftirherma. Betri eða verri, bara eftirherma.
Vinsældir Land Cruiser hér á landi renna stoðum undir nafnbótina
Eða plebbaskap.
Þessi voldugi jeppi er kafli út af fyrir sig í jeppaflóru landsmanna.
Hvernig?
2014-gerðin virðist ef til vill ekki mikið breytt við fyrstu sýn...
Það verður alltef að breyta einhverjum smáatriðum til þess að menn nenni að skifta um. Þetta er jú stöðutákn.
Þeir lærðu það way back in the sixties hjá Lincoln að það þarf að breyta útlitinu öðru hvoru.
Það fyrsta sem slær mann þegar sest er undir stýri er innanrýmið.
Ef þessi bíll er stærri að innan en 198X Chevy Blazer verð ég hissa.
Þá er gaman að því hve hátt er setið í bílnum,
Auðvelt er að skemmta þér þá.
...innstigið er frekar hátt.
Á íslensku: það þarf að príla uppí þetta bákn.
Eins og hefðin segir til um
... hvað.
Meira að segja gaumhljóðið í stefnuljósinu er faglegt á að hlýða,
HAHAHA!
Það er tekið eftir Land Cruiser 200 á götum úti,
Man ekki eftir að hafa séð neinn í svipinn. Þó veit ég að einn gaur á eyjunni á svona. Þeir eru í raun ekki mjög ólíkir 150 bílunum.
Hann vigtar enda tvö og hálft tonn
Innbyggð vigt? Sniðugt.
Dísilvélin sem prófuð var togar nefnilega 650 Nm milli 1600 og 2800 snúninga og það er hrein unun að botna þennan tilkomumikla dreka.
Það er enginn lúxus í að aka einhverju með ljósavél úr einhverjum togara.
...þegar vélin rymur af stað skilar hljóðið sér samt til ökumanns, og það er bara hluti af lúxusnum.
Það er ekki lúxus.
200-bíllinn er skemmtilega rásfastur
Svona langir bílar á grind eru það oftast.
og fjöðrunin er hreint framúrskarandi
Fyrir þennan pening er það eins gott.
Sjálfskiptingin er að sama skapi þýðgeng
Sjálfskiftingar eru aldrei "þýðgengar."
... ákveðið afrek að hún sé jafnþrepalaus í akstri, að kalla, fyrir svo stóran bíl.
Hvað kemur það stærð ökutækisins við hvernig sjálfskiftingin virkar?
Þegar á framangreint er litið kemur það rækilega á óvart að Land Cruiser 200 sé með undir tíu lítra eyðslu á hundraðið en það er tilfellið með díselútgáfuna 9,5 lítrar.
Á langkeyrzlu kannski, og þá á stöðugum 90 km hraða. Innanbæjar, dream on.
Þegar á allt er litið er erfitt að tína til galla á Land Cruiser 200.
Auðvelt: Stór, þungur, ljótur, dísel, allt of dýr, frumstæður.
Tuttugu milljónir eru auðvitað töluverður peningur en, eins og þar stendur, þetta er frábær bíll ef þú hefur efni á honum.
Ef ég ætti 20 millur, myndi ég sennilega kaupa eitthvað annað.
Fyrir þá sem kjósa rúmgóða og vel búna lúxusjeppa eru keppinautar Land Cruiser 200 ekki margir.
Fyrir þá sem hafa efni á þessu, þá er mikið framboð: Range Rover, fyrir þá sem vilja extra góðan bíl. Lincoln eða Cadillac fyrir þá sem taka þægindi og "presence" fram yfir allt annað. Benz. Porche, fyrir þá sem vilja aka mjög hratt. Svo er náttúrlega þetta: http://www.conquestvehicles.com/index.html
Fyrir hina sem vilja bara bíl sem er gaman að keyra og treystandi fyrir allskyns torfærum: Hilux. Það er eina góða Toyotan. Verst með vélarnar... en hey, ekki verður á allt kosið.
Lystisnekkja á hjólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2014 | 08:44
Þetta hefur greinilega verið að malla lengi
Þetta er náttúrlega fjölmenningarsamfélag. Þau eru svona. Eða það er svona. Ég get ekki bent á annað.
"Lögreglumenn í Bandaríkjunum verða mun fleira fólki að bana á hverju ári en í öðrum vestrænum ríkjum. Í Kanada eru tilfellin á annan tug á ári en í Bretlandi var enginn skotinn til bana af lögreglu í fyrra."
Eru í Kanada heil hverfi þar sem búa bara varanlega fátækir?
Og það eru mjög fáar löggur með byssur í Bretlandi, þó þeim megi sjá bregða fyrir í London. Sérstaklega kringum höllina.
Svo er lögreglu-batteríið í USA áberandi öðruvísi en allstaðar annarsstaðar í heiminum. Lögin eru öðruvísi, menningin er öðruvísi.
"á sjö ára tímabili hefðu hvítir lögreglumenn banað svörtu fólki um 96 sinnum á ári að meðaltali."
Sem vekur upp spurninguna: hversu mörgum káluðu svartar löggur?
"...lögregluþjónar beiti reglulega harkalegu ofbeldi vegna ófullnægjandi þjálfunar og eftirlits."
Þetta hefur líka eitthvað meða að gera mannskapinn sem velst inn. Kannski eru kröfurnar bara ekkert meiri, eða bara þessir gaurar sem eru til í að vinna fyrir þennan pening.
Lögreglan er jú ekkert hálauna starf.
Og fólk heimtar alltaf fleiri löggur, meiri gæzlu. Fyrir svipaðan pening.
Fólk hér er að biðja um eitthvað svona, það bara gerir sér ekki grein fyrir því. Né mun það átta sig á því eftir að það hefur fengið það.
"Lögreglan mæti á staðinn með vopnin á lofti tilbúin til að drepa."
Og forvirkar rannsóknarheimildir. Ekki gleyma þeim.
"Lögreglumenn ætlist einnig til þess að borgararnir hlýði skipunum skilyrðislaust, óháð aðstæðum."
Er það ekki þannig allstaðar?
"Í besta falli skapar það samfélög þar sem borgararnir neita að vinna með lögreglunni,"
Þetta er þegar að gerast. Fólk hringir helst ekki í lögregluna vegna til dæmis bíla á hvolfi úti í vegkanti - nema það viti að það komist undan.
Það er ekkert grín að lenda í bandarísku lögreglunni.
"þar sem þeir eru frekar tilbúnir að umbera glæpi en að vinna með stofnun sem leggur fæð á þá og kemur fram við þá eins og þeir séu ekki menn."
Íslenska ríkið í hnotskurn. Síðan alltaf.
Býður við rasisma í samfélaginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2014 | 14:19
Fólk eyðir bara öllum peningunum sínum
Þannig er það bara.
Það er ekki mitt að hafa áhyggjur af því, stjórna því eða stressa mig yfir því.
Af hverju haldiði að það sé ykkar?
Gerviþarfir ráða kaupunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.12.2014 | 20:43
Einhver segi þessu fífli að færa rök fyrir því
Ég bið ekki um annað.
Svíþjóðardemókratar nýfasískur flokkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.12.2014 | 20:41
Nei, það hefur það ekki gert
Þetta er hrein og bein lygi:
"Eldsneytisgjaldið lækkar miðaverð"
Eldsneytisverð hefur lækkað. Það hefur lækkað verð á miðum. Eldsneytisgjaldið heldur verðinu enn uppi. Hærra en það annars væri.
Rétt skal vera rétt.
Bull er í mbl...
Eldsneytisgjaldið lækkar miðaverð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |