16.12.2015 | 19:38
Ég mæli með "Rúritanía"
15.12.2015 | 21:37
Þetta eru Aksjón Fígúrur
Lítur vel út. Lúkkar flott við hliðina á Zombí-Jesú.
Jólaskrautið í ár.
Lögðu hald á grjótkastarabrúður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2015 | 21:58
Já.
14.12.2015 | 20:04
Af hverju fá þeir skyndilega fylgi?
Af sömu ástæðu og píratar.
Hinir tveir eru búnir að vera við völd mjög lengi, eru á gömlum rótum, fullir af gömlum mönnum með gamlar hugmyndir.
Og fólk er bara að verða leitt á þeim.
Ósigur! Hvaða ósigur? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2015 | 20:00
Það stendur til að flytja inn fleiri,
ég er með hlekk:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/12/14/veiting_rikisborgararettar_raedd/
Svo er hér ágætur maður að tjá sig um ástand heilbrigðiskerfisins:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/12/10/fjarsveltid_thjodinni_til_skammar/
Bara viðeigandi fréttir. Hvaða ályktanir má draga frá þeim? Einhverjar?
Fjölgun öryrkja raunverulegur vandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.12.2015 | 21:41
Það sem vekur athygli hér:
"Hins vegar hafi aðrir flokkar tekið sig saman um að halda fulltrúum flokksins frá kjöri."
Má þetta?
Virðist ekki sérlega lýðræðislegt, að einhverjir aðrir en kjósendur stjórni því hverjir verða kosnir og hverjir ekki.
Þjóðfylkingin beið alls staðar ósigur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.12.2015 | 19:35
Chain of fools
Hér fyrir neðan er að finna samantekt AFP á bestu tilvitnunum hinnar 13 daga loftslagsráðstefnu í París:
Ekki mín orð.
Aðalsamningamaður Kína, Su Wei:
Þegar þú eldar máltíð þarftu krydd, innihaldsefni og uppskriftir. Og í næstu viku fer hin eiginlega eldamennska fram, á eldavélinni í eldhúsinu. Þá upplifir þú aðalsmerki franskrar matreiðslu og bragðið af öllum réttum heimsins.
... ok? Namm namm, býst ég við.
Karl Bretaprins gaf frá sér stríðsöskur við upphaf ráðstefnunnar:
Ég sé hann fyrir mér á lendaskýlu þegar hann gerði það, og svo hefur hann sveiflað sér á svona hangandi vínviðargrein.
Espen Ronneberg,[...] frá Kyrrahafsríkinu Samoa:
Við erum öll þreytt og verðum mun síður diplómatísk. Í staðinn komum við okkur beint að efninu. Sumir segja ekki einu sinni halló, heldur kinka bara kolli.
Vekur spurningar... hvaða efni? Um hvað nákvæmlega voru þau að tala? Kannski eldamennsku Su Wei? Eða hvernig þau ætla að nota loftslagsógnina á samstilltan hátt til þess að kreista pening úr fólki í heimalöndum sínum.
Enele Sosene Sopoaga, forsætisráðherra Tuvalu:
Öll hitastigsaukning umfram 1,5 gráður mun valda endalokum Tuvalu og annarra lágt-liggjandi eyríkja... ef við björgum Tuvalu þá björgum við heiminum.
Þeir stjórna ekki hitastigi jarðar. Þess vegna er gagnslaust að biðla til ráðstefnugesta.
Kardinálinn Peter K.A. Turkson, meðlimur sendinefndar Vatíkansins, biðlaði til trúaðra samningamanna:
Hvers vegna þörfnust við Guðs? Ef það eru einhverjir trúarinnar menn hér þá segi ég við þá; við getum ekki sagt að við elskum Guð þegar við elskum ekki það sem Guð hefur skapað. Og hvað skapaði Guð? Guð skapaði jörðina og hinn mennska mann.
Má reyna. En gerum nú ráð fyrir að það sé guð og guð hlusti og sé til í að gera eitthvað fyir okkur...
Hver er nógu evil til þess að heimta að hér hlýni ekki?
Al Gore, [trúður] og Nóbelsverðlaunahafi, vísaði til sprengjunnar sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Hiroshima til að lýsa áhrifum gróðurhúsalofttegunda:
Hinn einfaldi sannleikur er sá að uppsöfnuð loftslagsbreytandi mengun í andrúmsloftinu af manna völdum fangar nú jafn mikla viðbótarvarmaorku í andrúmslofti jarðar eins og myndaðist ef 400.000 atómsprengjur af Hiroshima-stærðargráðu væru sprengdar á jörðinni á hverjum degi. Þetta er stór pláneta en þetta er gríðarlegt magn orku.
Það er freistandi að reikna þetta út. En þetta er sennilega það sem á fræðimáli er kallas "ass-pull" hjá honum, eins og alltaf áður.
Bandaríski leikarinn Sean Penn sá von í nýrri vegferð fyrir mannkynið:
Ef til vill er þetta mest spennandi tímabilið í sögu mannkyns. Tálsýn þess að þurfa að taka of margar erfiðar ákvarðanir hefur alltaf skapað glundroða. Nú lifum við á tímum þar sem það er ekki um neitt að velja. Við búum við fullvissu. Dagar drauma hafa vikið fyrir dögum aðgerða.
Vá... bæði innihaldslaus og svolítið fasísk ræða hjá honum. "Val skapar glundroða, það er ekkert val! Bara aðgerðir!"
Fuck hann.
Anote Tong, forseti Kiribati:
Ég er viss um að þú telur mig brjálaðan, en þetta eru brjáluð staða. Viðburðir af þessu tagi hafa aldrei áður átt sér stað;
Jú víst. Og oft.
Barack Obama Bandaríkjaforseti:
Ef við leyfum jörðinni að hlýna á þessum hraða,
Hvernig ætlarðu að banna henni það?
og sjávarborðinu að hækka eins og það hefur gert,
... hefur það hækkað? Mikið? Nú er ég hérna við sjávarsíðuna og sé engan mun síðan fyrir 15 árum.
og ef veðurfar breytist á óútreiknanlegan hátt,
Sem það gerir, og hefur alltaf gert
þá munum við brátt þurfa að verja auknu fjármagni og auknum herafla ekki til að fjölga tækifærum fólks
Þarf að fjölga tækifærum fólks með herafla? Then you're doing it wrong.
heldur í að laga okkur að ýmsum afleiðingum breyttrar plánetu.
Frá árdögum mannkyns hefur alltaf dugað að laga sig bara að aðstæðum jafnóðum. Hefur ekki þurft samstillt átak einhverra herafla til þess.
Hinn suður-afríski Nozipho Mxakato-Diseko:
Ég segi ekki að .einhver muni þrífa herbergið. Ég segi: Þú, Jón, þrífur herbergið. Þú, Gréta, vaskar upp. Það er ekkert einhver í þeirri stöðu að geta sópað gólfið gerir það. Einhver þarf að vera ábyrgur og ég þarf að vita að gólfið verður þrifið.
Og svo fara þau öll út og dansa regndans til þess að hafa áhrif á veðrið. Eftir að þau eru búin að rukka nágranna sína um afnot af skýinu þarna sem lýkist svolítið kind.
Tíu bestu tilvitnanirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.12.2015 | 19:04
Til samanburðar eru umferðarlögin 27 bls.
Þau eru hér: http://www.althingi.is/lagas/nuna/1987050.html
Ég tók allan textann, með html & myndum, ýtti bara á ctrl+c, og peistaði svo allt draslið á open-office.
27 blaðsíður, það, 9 pt Drid serif. Þau eru semsagt ekki svo fyrirferðamikil.
Af hverju ættu lög um útlendinga að vera lengri og flóknari?
Ný útlendingalög 130 blaðsíður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.12.2015 | 00:49
Hver hefur sína perversjón
Ást forsetaframbjóðenda Repúblíkana á skotvopnum hefur nú snúist í höndunum á þeim.
Er það?
Á Tumblr síðunni GOP Dildo má nefnilega sjá túlkun Matt Hughey á því sem vopnin þýða í raun fyrir frambjóðendurna - risavaxin typpi.
Grunar mig heldur að þetta sé bara sú merking sem Matt þessi Hughey leggur í þetta.
Hans tumblr síða, hans perversjón, ég skal ekki hallmæla honum fyrir. Ég þekki mann sem er fyrir ílát og IKEA, og flest það sem lífsanda dregur, og þó það sé vissulega ljóður á hans persónu að því mér persónulega finnst, þá hallmæli ég honum ekki fyrir.
Hann Matti þessi ætti þó að fara varlega með ... dildóinn sinn ... ef hann meiðir sig á honum er það ekki bara ég sem hlæ.
Frambjóðendur fá gervilimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2015 | 18:16
Yrði það svo ódýrt?
...Varaþingmaður Pírata spurði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra út í væntanlega innreið matvæla sem ræktuð eru á tilraunastofum á allra næstu árum.
Björn Leví Gunnarsson, varaþingmaður Pírata, benti á að vísindamenn áætluðu að kjöt sem ræktað er á tilraunastofumgeti orðið samkeppnishæft við núverandi framleiðslu á næstu tíu árum.
Gæti orðið. Við eigum eftir að sjá það.
Afleiðing væri sú að Íslendingar yrðu ekki að veiða fisk eða rækta dýr, aðeins þyrfti að rækta vöðva.
En hvað ef maður vill fá leður? Kæmi það úr sömu maskínu? Hvað með gelatín, og kalk og allan þann helling af auka-afurðum sem koma úr beljum en við hugsum aldrei um?
Allt framleitt á rannsóknarstofu líka?
Af hverju grunar mig að það verði ekkert ódýrara?
Í svari Sigurðar Inga kom fram að ekki væri uppi nein vinna við að skoða þessa framtíðarsýn þingsmannsins og að honum hugnaðist hún ekki.
Auðvitað ekki. Af ýmsum ástæðum:
1: tæknin er enn í þróun. 10 ár er sennilega bjartsýni í vísindamönnum.
2: þingmenn eru venjulega ekki inní tækni - svona almennt.
3: það tíðkast venjulega að bregðast við öllu svona eftirá.
Sagðist ráðherrann muna eftir að hafa séð álíka framtíðarsýn í mynd eftir Woody Allen þar sem fólk tók eina töflu sem matarforða þess dags.
Það mun vissulega gera ofát mjög auðvelt.
Það viðhorf virðist ríkjandi um allan heim að matvæli sem fólk fær séu heilnæm.
Í alvöru? Þú segir ekki.
Björn Leví sagði að þessar tækniframfarir hefðu gríðarleg heilnæm áhrif í för með sér því ekki þyrfti að dæla miklu magni sýklalyfja í dýr,
Þú dælri þeim bara í einhvern vöðva í krukku í staðinn.
Halda menn kannski að vöðvar í krukku geti ekki smitast af pestum?
Gróðrarstíur flensunnar, stórar verksmiðjur, hverfi.
Eru stórar verksmiðjur gróðrarstía flensu núna? Fréttir segir hann mér núna.
Magnaða og undarlega hluti heyrir maður núna af þingi.
Vonandi bið í tilraunastofukjöt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |