18.6.2019 | 17:07
Ráðuneytið þarf að tileinka sér nútíma tækni
Með þessari einföldu vél, sem ég set mynd af hér fyrir neðan, hefði verið hægt að *fækka* starsfmönnum í þessu annars gagnslausa ráðuneyti um 13 á sama tíma.
Þessi vél er einföld, og vinnur vinnu allra þessara 26 starfsmanna sem við þurfum nú að borga fyrir á miklu áhrifaríkari hátt.
Þetta er ljóslega jafn gott og 50 ræikisstarfsmenn. Og það þarf ekki að borga þessu laun. Og hér er svo de-lúx útgáfa, fyrir vandláta:
Maður á að nýta sér tæknina. Sparar fullt af pening.
Starfsmönnum fjölgaði um 29,5% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.6.2019 | 21:18
Miðflokkurinn til bjargar aftur
Q: "Þessa stundina er 21. dagskrárliður, loftslagsfrumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra til umræðu [...] Nokkra athygli hefur þá vakið að allir þingmenn Miðflokksins eru á mælendaskrá vegna frumvarpsins."
Málþóf?
Fuck yeah!
Manni fer að verða vel við þessa gaura.
17 frumvörp afgreidd það sem af er degi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2019 | 17:12
Hverju ætli það breyti?
Einu sinni var hér sorp-brennzla. Ákveðið var að slökkva á henni vegna þess að menn nenntu ekki að hreinsa úr henni útblásturinn.
Um daginn ætluðu þeir svo að vera voða sniðugir og láta fólk flokka ruslið. Þannig enduðu allir með 3 tunnur. Að sjálfsögðu er allt tæmt í sama bílinn og blandað saman. Hvað annað?
Svo er farið í smá ferðalag upp á land með ruslið, því það er svo umhverfisvænt og í alla staði þrifalegt.
Og þetta var bara bærinn.
Hvað mun taka við þegar Ríkið fer í þetta?
Ja, að gefinni reynzlu:
Við fáum 3 tunnur í viðbót. Allt endar í sama bílnum, auðvitað.
Rulsið verður sent til Filippseyja, og þaðan til Kanada, og hent þar í sjóinn.
Allt þetta mun einungis kosta 4X meira en núverandi kerfi.
Ég er í rusli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2019 | 19:13
Tími er peningar
Það tekur enga stund að rúnta einhverja 250 km, sem er það sem beztu rafbílar komast núna. Að því loknu er einhver bílaleiga ekkert í stakk búin að tapa 5 klst leigutekjum í einhverja bið eftir hleðzlu.
Fyrir mann í venjulegri vinnu sem er samt svo óvenjulegur að ferðast alrei út fyrir borgarmörkin virkar alveg að vera á rafbíl.
Einhverjar hleðzlustöðvar myndu henta þeim kauða vel.
Annars nenna fæstir að hanga í fleiri klukkutíma eftir hleðzlu. Þetta þarf að laga einhvernvegin. Á einhvern hátt sem veldur ekki eldsvoða, eins og hjá Tesla.
Það gengur illa að halda þeim í leigu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2019 | 15:20
Rekum bara Ara Trausta
Sko:
Þingfararkaup alþingismanna er frá 30. október 2016: Kr. 1.101.194
*12 = 13.214.328
Ef við leggjum þingsæti hans alveg niður sparast annar kostnaður líka, sem er mismunandi eftir hver situr í sætinu. Þetta er tíunað hér: https://www.althingi.is/thingmenn/starfskjor-althingismanna/starfskjor-thingmanna-yfirlit/
Þannig spörum við *meira en* 13 milljónir á ári, sem geta nýst í annað. Eins og til dæmis í að ráða handrukkara til þess að fótbrjóta þá sem koma með fleiri tillögur um "loftslagsgjöld" og annað í þeim dúr.
Leggur til flatt loftslagsgjald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |