19.11.2018 | 15:40
Heimsbókmenntirnar á Kindle
Nú þurfiði ekki að fara í Nexus. Nema þið viljið.
Það eru sárafáar bækur á íslensku á Amazon, sýnist mér. Við þurfum að lagfæra það.
19.11.2018 | 15:34
Hvað segir núverandi kærasti hennar um það?
Það hlýtur að vera sérlega áhugaverður maður.
Líklega kæfð af þáverandi kærasta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2018 | 18:32
Gaman þegar fólk er að tala um hluti sem það veit ekkert um
Meira gaman þegar það sama fólk er við völd.
"Við stöndum á nokkrum tímamótum þegar kemur að efnahagsmálum á Íslandi sem og í heiminum. Sú hagfræðikenning sem hefur mótað efnahagsstefnu 20. aldarinnar, efnahagsstefna sem byggir fyrst og fremst á því að halda áfram hagvexti út í eitt, sú efnahagsstefna er að líða undir lok.
Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna,"
Ef það á ekki að halda hagvexti áfram, þá er eins gott að það verði ekki fólksfjölgun. Það myndi bara þýða hungur.
"Hún sagði þá að staða launafólks snerist ekki bara um næstu kjarasamninga heldur einnig hvernig eigi að takast á við loftslagsbreytingar."
Loftslagsbreytingar eru einfalt viðfangsefni: við förum í úlpu ef kólnar, og úr henni ef hlýnar.
"Það muni þýða gerbreytingu á neysluvenjum, efnahagsstjórn og að horfa þurfi frá vaxtamengi en frekar í átt til jafnvægis."
Stöðnun, meinar hún.
"Það liggur fyrir að framboðið er ekki nægjanlegt á húsnæði. Þetta virðist vera einn stærsti áhyggjuvaldurinn í lífi venjulegs fólks. Það er ekki bara kostnaður við húsnæðin sem leggst sérstaklega þungt á láglaunafólk, sem er miklu heldur á leigumarkaði heldur en þeir sem eiga sínar eigin íbúðir,..." osfrv.
Einn helsti postuli ofstjórnarhyggjunnar veit hvers eðlis vandamálið er, en ekki að hún sjálf hefur unnið ötullega að því að búa vandann til.
Fyrst býr hún til stöðnun, vegna þess að hún er alveg viss um að hagvöxtur sé vondur, svo fussar hún og sveiar yfir skorti á hagvexti, og þeim vandamálum sem það hefur í för með sér.
Af hverju kaus fólk hana? Viljandi?
Hagvaxtarstefnan að líða undir lok | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2018 | 14:49
Augljóslega bráðnauðsynlegt
Það kemur reyndar hvergi fam þarna hvað þetta felur í sér, eða hvers vegna þetta er nauðsynlegt, og það svo mjög að ríkið þarf að vasast í þessu.
Einhver?
Styttist í sviðslistafrumvarpið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2018 | 23:00
Þetta er sko fyrirsögn vikunnar, ef ekki mánaðarins
"Rykmagn veldur háum styrk svifryks"
Það er í laginu eins og það sjálft, það.
Rykmagn veldur háum styrk svifryks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2018 | 21:32
Og þar með er Jón Gnarr gjaldþrota
Banksy.
Við vitum nú að verk eftir hann hafa selst á $200-1400. Við getum því reiknað með að þetta verk Jóns sé metið á aldrei minna en $50K.
50K eru 6.1 milljón. 37% af því eru 2.260.000. Gangi honum vel að greiða það.
Gjöf Banksy til Jóns sögð skattskyld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2018 | 21:24
Er þetta einhverskonar brandari?
Tilvitnun: "Fordómafull skilaboð sem dreift hefur verið um háskólasvæðið að undanförnu (Um er að ræða veggspjöld og límmiða sem innihalda skilaboð á borð við að það sé í lagi að vera hvítur) voru sett upp án leyfis og vitundar Háskóla Íslands og eru í fullkominni andstöðu við stefnu skólans og gildi. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Jón Atli Benediktsson rektor sendi á nemendur skólans í dag."
Semsagt: að vera hvítur er í fullkominni andstöðu við stenfu skólans? Það var ekki svo þegar ég var þar.
Tilvitnun: "Vegna skilaboðanna vill Jón Atli árétta mikilvægi þess að allir hópar fólks upplifi sig örugga á háskólasvæðinu og að allir hjálpist að við að tryggja að virðing sé borin fyrir fjölbreytileika mannlífsins."
Nema hvítum.
Tilvitnun: "Þá minnir hann einnig á að jafnrétti sé eitt af þremur grunngildum Háskóla Íslands Í jafnréttisáætlun Háskóla Íslands er lögð áhersla á að mismunun á grundvelli kyns, kyngervis, uppruna, litarháttar, fötlunar, kynhneigðar, kynvitundar, aldurs, heilsufars, trúarbragða, skoðana, búsetu, efnahags eða menningar er óheimil innan háskólans,"
Hér er ljóst að rektor hefur látið hafa sig að algjöru fífli.
Fordómafull skilaboð á háskólasvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2018 | 17:38
Dýrari ráðherrabílar
Einmitt það sem okkur vantaði.
Ráðherrabílar verða rafvæddir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.11.2018 | 20:56
Óvæntar aukaverkanir rafbílavæðingarinnar
Eins og er, með öllum tollum, er rafbíll ca milljón dýrari en venjulegur bíll. Frá ódýrasta til ódýrasta af sömu stærð.
Það gerir mismun á mánaðarlegum afborgunum fyrir nýtt ökutæki ~20.000. Fyrir þann pening er hægt að keyra ansi langt.
Ef hætt yrði að flytja inn önnur ökutæki en rafbíla, þá er ljóst að þó þau kæmust jafn langt á dag og standard bíll, þá væri verðið að útiloka nokkuð stóran hóp.
Og ef tollar yrðu lagðir á farartækin, þá stækkaði sá hópur.
Þarna er kominn vísir að stéttaskiftingu byggða á hreyfanleika. (Sem er nú þegar verið að vinna að fyrir opnum tjöldum, með öllum þessum kolefnis-gjöldum.)
Hlakkar ykkur ekki til?
Rafbílavæðing hagkvæm fyrir þjóðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.11.2018 | 20:47
"samkvæmt skattframtölum"
Hm...
Hvað á ég annars að gera við þessar upplýsingar? Þær nýtast mér ekki neitt.
Ríkustu 5% áttu 42% eigin fjár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |