20.10.2014 | 17:25
Vísun í Zabriskie Point?
Zabriskie Point er alveg arfaslök kvikmynd sem var gerð fyrir mína tíð. Hún er bara þekkt fyrir þetta eina atriði, þar sem allskyns húsmunir sjást springa í loft upp í sló-mó.
Það er næstum þess virði að horfa á kvikmyndina fyrir þá senu.
Mesta vitið væri í að finna atriðið bara á youtube.
Rolls sprengdur í þágu listanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.10.2014 | 17:21
Hvað er eiginlega með ameríkana og pallbíla?
Þeir eru ekki allir bændur.
Hvað er það sem þeir þurfa svo mikið að flytja, sem má samt alveg rigna á?
Trukkasmiðir í stríð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.10.2014 | 10:04
Hvernig væri að redda þeim liðsauka líka?
Ætti að vera lítið mál að droppa kúrdískum 200 sjálfboðaliðum út á sömu slóðum.
Og koma svo daginn eftir með 200 í viðbót.
Kúrdare eru víst eitthvað í kringum 50 milljónir, það ætti að finnast mannskapur í þetta.
Vörpuðu vopnum til Kúrda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2014 | 18:15
Mánuðum? Í fleirtölu?
Djöfull er hann lengi að þessu.
Það er eðlilegt að það taki mánuði að villuleita, en ekki að skrifa.
En ég tala þá fyrir mig.
Skrifaði bókina á örfáum mánuðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2014 | 18:01
Þetta mun vera algengt kvikyndi
Þetta er "Gorgonocephalus eucnemi."
Miðað við útlitið á þessu, giska ég á að þetta sé afar ljúffengt sé þetta þurrkað í ofni og barið eins og harðfiskur.
Svona eins og atarime.
Veiddi furðulegt sæskrímsli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2014 | 17:56
Hægt að fylgjast með þessu á wikipedia
Það er ágætt að tékka á því annan hvern dag.
Tala látinna hjá ISIS hækkar aðeins hraðar eftir að kaninn byrjaði fyrir alvöru að hjálpa þeim.
ISIS hljóta að fara að verða uppiskroppa með skriðdreka. Það eru eitthvað svo stór og freistandi skotmörk.
Þetta lið...
Þeir eru með svo mikla yfirburði: margfalt fleiri menn, betri græjur (hafa skriðdreka vs. enga skriðdreka), betri logistics; en svo hegða þeir sér eins og þeir séu að berjast við margfalt stærra og betra lið. Aldrei lesið Sun Tzu? Sennilega ekki.
Sprengjuregn í Kobane | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2014 | 17:36
Allar köngulær eru eitraðar
Fann eitraða kónguló í bananaknippi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2014 | 01:36
Hefur þú aldrei hitt einn?
"Óbreyttir borgarar eru til allrar hamingju lítið fyrir það að drepa annað fólk, svona yfirleitt."
Hermenn ekki heldur - ef eitthvað er að marka rannsóknir bandaríska hersins á eftir-orrustu skýrzlum síðan ww1&2.
Niðurstaða: allt að 2/3 taka ekki einu sinni þátt í bardögum, jafnvel þegar verið er að skjóta á þá. Af hinum, þá eru ansi fáir sem skjóta í átt að andstæðingnum. Flestir bara *skjóta eitthvert tuil aðp taka þátt.*
"Trú, siðferðisleg gildi og lög mæla gegn slíku athæfi."
Kjaftæði. Fólk er bara svona.
"En hversu friðsamleg og miskunnsöm erum við?"
Í raun? Flest ráðumst við bara á minni máttar. Vegna þess að þeir slá síður á móti. Þess vegna er samfélögum svo mikilvægt að allir séu óvopnaðir, svo fámennir hópar geti drottnað yfir stærri hópum með ofbeldi.
"Eina sem þurfti til að brjóta niður siðmenningarmúrinn var að ábúðarmikill maður í hvítum sloppi segði þátttakendum fyrir verkum."
Heh. Nei. Siðmenningin sagði að gaurinn í hvíta sloppnum hefði vit á þessu.
"Hernaður er eitt, hrottaskapur Íslamska ríkisins, IS, á sér vart líka og meðferð þeirra á óbreyttum borgurum úr trúarfylkingum sem IS líkar ekki við er ólýsanleg "
Þú ferð ekki mikið út, er það?
Skoðum söguna.
Árin 1952-1960 vour Bretar að berjast við Mau Mau í Kenya. Meðal þess sem þeir, bretarnir, dunduðu sér við, þegar þeir náðu einhverjum til fanga, var að troða flöskum upp í endaþarminn á þeim, og bróta þær svo þar. Þótti það hin mesta skemmtun.
1941 hófst Barbarossa herferðin. Þá börðust sósíalistar við aðra sósíalista, og gekk víglínan fram og aftur. Þegar þjóðverjar náðu bæ, tóku þeir alla gyðingana (ef einhverjir voru þar) og fóru með þá í þar til gerða verksmiðju til þess að búa til sápu úr þeim.
En þeir drápu ekki alla. Svo, seinna, þegar Rússar náðu pleisinu aftur, þá fannst þeim grunsamlegt að ekki var búið að myrða fleiri, grunuðu alla íbúna um föðurlandssvik, og áttu til að taka þá alla af lífi.
Förum lengra aftur: 1618-1648 geisaði 30 ára stríðið í Þýzkalandi. Það var mjög skemmtilegt. Þar liftu herflokkar á uppskeru bænda, með þeim afleiðingum að bændur sultu.
Svo mættu svíarnir á svæðið. Þegar þeir komu að tómum matarkistum, þá náðu þeir sér í trekt, komu henni fyrir í munni húsráðenda, og migu í hana. Ef þeim var ekki mál, fóru þeir í flórinn og náðu í eitthvað sem var nógu þunnfljótandi þaðan, og settu í trektina.
Þegar húsráðendur voru svo orðnir fullir af gumsi, spörkuðu svíarnir í þá til að knýja þá til sagna.
Og svo framvegis.
ISIS er ekkert meira brútal en hver annar, og ekki að finna neitt upp.
"Lítið er í reynd vitað um aðferðirnar sem yfirmenn IS í Sýrlandi og Írak nota til að herða liðsmenn sína, gera þá miskunnarlausa."
Þeir auglýsa eftir fólki, og fá ekkert nema rétta fólkið. Þetta er auðvelt. (Ég hef ekki séð að þetta sé mjög gott bardagalið hinsvegar...)
"Gera yrði þá ónæma fyrir þjáningum annarra,"
Væri ekki betra að fá bara sadista?
tryggja að þeir væru hræddir við yfirmann sinn en líka hlýðnir. "
Þetta er gert í mörgum herjum, viljandi, til að þeir loði betur saman og séu ekki að gera hluti sem þeir eiga ekki að vera að gera.
"En hann bætti við: Ef óvinir okkar halda að við séum brjálaðir sigrum við jafnvel áður en sjálfur bardaginn byrjar."
Þetta virkar á heimskt og veklundað fólk. Sem sagt, flesta. Raunveruleikinn er sá að brjálað fólk er auðsigrað. Menn þurfa bara þennan smá aga sem þarf til að standa og berjast, en ekki hlaupa í burt eins og aular og fela sig undir rúmi.
"Á undan liði IS fer annar her, sveitir ofsahræðslu við menn sem virðast hafa yfirgefið mannkynið."
Ef þeir eru ekki mennskir, þá þýðir það að ég má borða þá. Ég á karrý.
"Wakefield veltir því fyrir sér hvort við ættum frekar að gera gys að íslamistaleiðtogum en að hneykslast á þeim."
Auðvitað ættum við að gera það.
Sjáið til dæmis ISIS. Þeir rétt eiga í lítinn hóp skæruliða, þó þeir sjálfir séu meira en þrefalt fleiri. Einu vopnuðu mennirnir sem þeir hafa komist í kast við. Svo koma bandaríkjamenn með nokkrar fjarstýrðar flugvélar, og bardaginn snýst við.
Er ég sá eini sem tekur eftir þessu?
Að breyta strákum í skrímsli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2014 | 22:09
Besta auglýsing sem Sjálfstæðisflokkurinn getur vonast eftir
Í ræðu sinni gagnrýndi Katrín m.a. skattabreytingar ríkisstjórnarinnar, viðhorf hennar til menntamála og stefnu stjórnvalda til loftlagsbreytinga og þróunaraðstoðar.
Gott að hún skuli minnast á það:
Af hverju eigum við, bláfátækt fólkið, sem höfum ekki efni á heilbrigðiskerfi, menntu, eða flatskjá, að borga fyrir ÞRÓUNARAÐSTOÐ? Hvernig höfum við efni á því?
Okkur er sagt að skattabreytingar ríkisstjórnarinnar eigi að auka ráðstöfunartekjur heimilanna. En hvaða heimili, verð ég að spyrja, eru það heimili öryrkja, heimili leigjenda, heimili venjulegs fólks sem allar kannarnir sýna að eyðir stórum hluta tekna sinna í mat...
Nú, þeir ætla að leggja af sykurskattinn, sem var lagður á hin og þessi matvæli, af fyrri ríkisstjórn, augljóslega til að gera þau aðgengilegri fyrir þá sem hafa litlar ráðstöfunartekjur.
Hvernig sem það nú virkar.
á sama tíma og nemendaígildum er fækkað í framhaldsskólum,
Hvað er nemendaígildi?
Katrín sakaði forsætisráðherra um ósamræmi milli orða og gjörða þegar það kemur að loftlagsmálum.
Hvað er þetta sem er alltaf að koma að öllu?
Benti hún á að á meðan forsætisráðherra ræddi loftlagsmál á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna og lýsti þar yfir stuðningi við kolefnisskatta og auknar aðgerðir í loftlagsmálum sýni stefna ríkisstjórnarinnar allt önnur sjónvarmið.
Við skulum vera þakklát fyrir að við, bæði þau sem fá einhver laun, og hinir, öryrkjarnir, sem fá bara rétt til að kaupa pakka af núðlum, skulum ekki þurfa að borga kolefnisgjald ofan á alltsaman.
Kolefnisgjöld voru ekki hækkuð heldur lækkuð síðastliðið vor
Er Kolla farin að vinna fyrir Sjálfstæðisflokkinn núna? OK. Ég get sætt mig við það.
...og losunargjöld fyrirtækja vegna gróðurhúsalofttegunda voru lækkuð í fjárlögum 2014 og verða aftur lækkuð í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
Ég þarf að muna að merkja X við D næst. Þeir eru augljóslega að vinna þarft verk. Ekki bara fyrir mig, heldur líka fyrir allslags aumingja.
Það stendur líka til að kippa Loftslagssjóði úr sambandi og minnka framlög til almenningssamgangna. Bíddu hvað er þetta? spurði Katrín.
Ég veit hvað þetta er: næsta kosningaræða Bjarna Ben: "Við munum kipp loftslagssjóði úr sambandi."
Ég styð þetta. Af hverju ekki? Af hverju á ég að líða fyrir einhverja vitleysu í útreiktum hippum?
Sagði hún að þó svo að nýr spítali sé forgangsmál allra ráðherra sjá þeir samt engar leiðir til að reisa hann.
Sama sama.
Nema þá með því að selja aðrar eignir, t.d. hluta úr Landsvirkjun sem er gríðarlega mikilvægt fyrirtæki þjóðhagslega, sagði Katrín og benti á að ágóði auðlegðarskatts í fimm ár, sem hefur nú verið afnuminn, myndi nægja til þess að byggja nýjan spítala.
Ja, auðlegðarskatturinn nýttist náttúrlega vel til að fækka sjávarútvegsfyrirtækjum... ekki fæ ég séð hvernig ríkið græddi meira á færri skattgreiðendum, svo ég leyfi mér að efast um að hún sé að reikna þetta rétt út þarna.
Benti hún á að ríkisstjórnin væri nú að færast fjær markmiðum Sameinuðu þjóðanna um að verja 0,7% af landsframleiðslu í þróunarsamvinnu.
Við höfum ekki efni á að reka okkar eigin kerfi. Ríkið tekur til sín helminginn af öllu, og hefur samt eki efni á því sem það á að vera að gera.
Á meðan svo er, getum við ekki verið að halda uppi útlendingum. Og jafnvel þó við hefðum efni á því... af hverju?
Í staðinn er fyrirhugað að setja aukið fjármagn í NATO, sem kallar eftir auknum framlögum aðildarríkja sinna fyrir framtíðar hernað.
Getur það ekki bara flokkast sem þróunaraðstoð?
Þannig er hin raunverulega forgangsröðun og gildir þá einu hvað við göngum marga metra með vatnsfötu á hausnum.
Ekki grenja í mig, mér er drullu-sama.
Eru ekki að fara að kaupa flatskjá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2014 | 18:31
Jólin eru ansi mögnuð hátíð hjá sumu fólki...
Ekki veit ég hvað þau gera við jólatréin heima hjá sér.
Ég þarf að spyrja Sigurgeir.
Umdeilda jólatréð eyðilagt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |